14 október 2025
/
Fundur Velferðarvaktarinnar 14. október 2025
75. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn hjá VIRK og á Teams.
14. október 2025, kl. 14.00-16.00.
1. Umræða um húsnæðisbætur til fólks sem leigir herbergi
Rætt var um húsnæðisbætur en á síðasta fundi vaktarinnar var óskað eftir að tekin yrði upp umræða um húsnæðisbætur með sérstöku tilliti til þeirra sem leigja herbergi en samkvæmt lögum um húsnæðisbætur eru ekki greiddar húsnæðisbætur til þess hóps. Ákveðið var að vaktin myndi skoða þetta viðfangsefni nánar.
2. Rannsókn á stöðu launafólks á Íslandi
Kristín Heba Gísladóttir frá Vörðu - rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, kynnti niðurstöður rannsóknar á stöðu launafólks á Íslandi en stofnunin leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust. Sjá skýrslu.
3. Þátttaka barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi
Auður Þorsteinsdóttir og Andri Stefánsson frá UMFÍ og ÍSÍ kynntu hlutverk svæðisstöðva, sem ætlað er að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
4. Önnur mál.
- Vakin var athygli á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna um fátækt þann 17. október nk. og viðburði í Borgarbókasafninu í tengslum við alþjóðadaginn.
- Næsti fundur Velferðarvaktarinnar verður haldinn 25. nóvember.