20 janúar 2026

/

Fundur Velferðarvaktarinnar 20. janúar 2026

77. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og á Teams.

20. janúar 2026, kl. 14.00-16.00.

 

1. Viðbúnaður heimila við vá og hlutverk félagsþjónustu og vernd viðkvæmra hópa í almannavarnarástandi.
Guðný Eydal, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, ræddi mikilvægi þessa viðfangsefnis og kynnti niðurstöður spurningakönnunar um hvernig íslensk heimili eru undirbúin undir vá á borð við náttúruhamfarir, heimsfaraldur o.s.frv. Í ljós kom að meirihluti heimila hafði ekki gert viðbragðsáætlanir né kynnt sér leiðbeiningar Almannavarna svo dæmi séu tekin. Guðný ræddi um hlutverk félagsþjónustu sveitarfélaga sem spilar stórt hlutverk í þessu samhengi og við gerð viðbragðsáætlana. Þá kynnti Guðný nýja rannsókn á vegum NVC (Norræna velferðarmiðstöðin) sem verið er að vinna að en um þessar mundir er mikil áhersla lögð á viðbúnað heimila og stofnana á Norðurlöndunum.

2. Ofbeldi gegn öldruðum

Sigurður Ágúst Guðmundsson, varaformaður Landssambands eldri borgara og formaður félags eldri borgara í Reykjavík, fjallaði um ofbeldi gegn öldruðum en Landssamband eldri borgara hélt fyrr í vetur málþing þar sem málefnið var til umfjöllunar. Ofbeldi gegn öldruðum hefur mikið verið til umfjöllunar og í máli Sigurðar kom m.a. fram að mikilvægt væri að stjórnvöld og aðrir hagaðilar tækju nú höndum saman í að leita leiða til úrbóta og að landssambandið væri tilbúið til þess að koma að þeirri vinnu. 

3. Skjólshús

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, kynnti Skjólshús sem er nýtt úrræði fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana þar sem boðið verður upp á skammtímadvöl í allt að tvær vikur, einstaklingum að kostnaðarlausu. Í húsinu geta allt að fimm einstaklingar dvalið á hverjum tíma. Öll starfsemi skjólshússins fer fram á jafningjagrundvelli þar sem allt starfsfólk og stjórn hússins er í höndum einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið leggja til fjárframlag til viðbótar við framlag Geðhjálpar.

4. Fréttir úr baklandinu

Reykjavíkurborg. Sigþrúður Erla Arnardóttir, fulltrúi Reykjavíkurborgar í Velferðarvaktinni, kynnti það sem er efst á baugi í velferðarmálum og þau verkefni sem verið er að vinna að á því sviði hjá Reykjavíkurborg.