16 mars 2026

/

Fundur Velferðarvaktarinnar 16. mars 2026

78. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og á Teams.

16. mars 2026, kl. 10.00-12.00.

 

1. Stefnu og aðgerðir gegn fátækt barna.

Kolbrún Baldursdóttir, sem leiðir vinnu sem stendur núna yfir innan mennta- og barnamálaráðuneytisins um mótun fyrstu stefnu og aðgerðaáætlunar gegn fátækt barna á Ísland, kynnti drög að stefnu og aðgerðum. Að kynningu lokinni fóru fram umræður og fulltrúar í vaktinni fengu tækifæri til þess að koma ábendingum á framfæri.

 

2. Heimsókn ráðherra

Ragnar Þór Ingólfsson, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, kom og átti gott samtal við fulltrúa vaktarinnar en hefð er fyrir því að nýjir ráðherrar komi á fund vaktarinnar og kynni sín áherslumál og fái jafnframt að kynnast störfum vaktarinnar og heyra hvaða málefni brenna helst á fulltrúum vaktarinnar. Fulltrúar vöktu athygli á stöðu mála í þeirra baklandi hvaða áskorunum þau væru að mæta í sínum störfum.