Framlög til stjórnmálaflokka
Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka er að finna reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi samanber II. kafli laganna.
Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eigi rétt á 12 milljóna króna grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju.
Þá fá stjórnmálasamtök sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hloti hafa að lágmarki 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum framlag úr ríkissjóði skv. ákvörðun í fjárlögum hverju sinni.
Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í þremur kjördæmum eða fleirum geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu að hámarki 750.000 kr. fyrir hvert kjördæmi sem boðið er fram í. Umsóknum um slíkan fjárstyrk skal skila til dómsmálaráðuneytisins eigi síðar en þremur mánuðum eftir að kosningar fóru fram.
Í 4. gr. framangreindra laga er svo kveðið á um framlög til þingflokka úr ríkissjóði og í 5. gr. um framlög frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka.
Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði sem og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð á stjórnmálasamtakaskrá skv. I. kafla C í lögunum og að þau hafi uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda skv. 8. og 9. gr. laganna og að ríkisendurskoðandi hafi birt ársreikning þeirra.
Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2025Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2024Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2023Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasmtaka 2022Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2021Framlög úr ríkssjóði til stjórnmálasamtaka 2020Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2019Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2018Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2017Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2016Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2015Framlög ríkisins til stjórnmálasamtaka 2014Framlög ríkisins til stjórnmálaflokka 2010-2013
Kosningar