Dómtúlkar og skjalaþýðendur

Lög um dómtúlka og skjalaþýðendur heyra undir dómsmálaráðuneytið. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hefur annast framkvæmd laganna frá 1. júlí 2015. Hann veitir meðal annars viðtöku umsóknum um löggildingu, skipuleggur próftöku og gefur út löggildingu til þeirra sem standast próf.

Dómsmálaráðuneytið annast norrænt samstarf samkvæmt norrænum tungumálasamningi.