Kuðungurinn
Umhverfisviðurkenning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins
Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem er veitt árlega.
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins óskar ár hvert eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á liðnu ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn. Kuðungurinn er jafnan afhentur í tengslum við Dag umhverfisins 25. apríl.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum, en Kuðungurinn er ekki veittur fyrir eitt stakt verkefni heldur heildarframmistöðu fyrirtækisins í umhverfismálum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.
Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 16. mars 2026, merktar ,,Kuðungurinn" á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki og stofnanir sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:
- 2005 - Línuhönnun, varð hluti Eflu verkfræðistofu 2008
- 2002 - Árvakur.
- 2000 - Íslenska álfélagið.
- 1999 - Borgarplast.
- 1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.
- 1997 - Olíufélagið.
- 1996 - Fiskverkun KEA í Hrísey.
- 1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.
- 1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.