Umhverfisþing

Umhverfisþing

Lögum samkvæmt ber umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að boða til Umhverfisþings annað hvert ár.  Umhverfisþing var síðast haldið árið 2025, dagana 15. og 16. september í Silfurbergi í Hörpu.

Meginþemu þingsins voru hafið, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsmál og var þinginu ætlað að ná fram uppbyggilegu samtali um viðfangsefnin og skapa með því grundvöll að framhaldsvinnu stjórnvalda í málaflokkunum.