Dagur umhverfisins
25. apríl
Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur þann 25. apríl ár hvert en hann er tileinkaður Sveini Pálssyni lækni sem fæddist þennan dag árið 1762.
Sveinn var annálaður fræðimaður, rithöfundur, læknir og ferðagarpur sem var frumkvöðull í rannsóknum á náttúru landsins og þá sérstaklega jöklunum. Hann er talinn meðal fyrstu Íslendinganna sem vöktu athygli á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, og vegna þess var dagur umhverfisins tileinkaður honum.
Í tengslum við Dag umhverfisins afhendir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála. Kuðungurinn er veittur fyrirtæki sem hefur skarað fram úr í umhverfismálum og Varðliðar umhverfisins er viðurkenning sem veitt er grunnskólabörnum fyrir verkefni á sviði umhverfismála.
Sjá einnig:
Fréttir
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
30 apríl 2025
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðurkenningar veittar fyrir umhverfismál
27 apríl 2021
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfisþing 27. apríl – skráning hafin
19 apríl 2021
Viðburðir