Dagur íslenskrar náttúru

16. september

Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Þeir sem nýta sér samfélagsmiðla í tengslum við daginn eru minntir á myllumerkin #íslensknáttúra og #DÍN.

Upplýsingar um viðburði, verkefni og uppákomur í tilefni dagsins má senda til umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins á netfangið [email protected]

Dagur íslenskrar náttúru