14. nóvember 2023Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Heimsþing kvenleiðtoga í Reykjavík
Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum, sem er orðinn fastur vettvangur alþjóðlegrar umræðu og tengslamyndunar um réttindi kvenna og kynjajafnrétti, hófst í Hörpu í gær en þinginu lýkur síðdegis í dag. Um 500 þátttakendur skráðu sig til leiks frá um 80 löndum, fimmtungur þeirra frá Íslandi.