21. nóvember 2023Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Stuðningur við Bergið
Bergið headspace fær styrk frá stjórnvöldum til að veita ungu fólki stuðning og ráðgjöf með áherslu á snemmtæka íhlutun til að stuðla að aukinni virkni og vellíðan. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, undirrituðu samning þess efnis við Bergið í dag.