03. september 2021Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Skrifað undir samning um kaup á 3 björgunarskipum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar, skrifuðu í dag undir samning um kaup á þremur nýjum björgunarskipum. Undirritunin fór fram við setningu landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Hörpu í dag.