19. febrúar 2021Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Vel gengur að fylgja eftir úrbótum á innviðum eftir fárviðrið í desember 2019
Ríkisstjórnin samþykkti þann 28. febrúar 2020 aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Í aðgerðaáætluninni voru lagðar til 287 nýjar aðgerðir eða flýtiaðgerðir.