24 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Læknamönnun á heilbrigðisstofnunum og lögmæti verktakasamninga
Vegna frétta um uppsögn Sjúkrahússins á Akureyri á verktakasamningum við lækna sem nefndir hafa verið ferliverkasamningar, vill heilbrigðisráðuneytið koma á framfæri nokkrum atriðum sem greina á milli hefðbundinna verktakasamninga og samninga sem bera einkenni gerviverktöku og eru ólögmætir.
Á síðastliðnum árum hafa við og við komið fram upplýsingar um að heilbrigðisstofnanir hafi í einhverjum tilvikum gert verktakasamninga við heilbrigðisstarfmenn sem bera einkenni gerviverktöku. Þetta kom m.a. fram í skýrslum Ríkisendurskoðunar árin 2018 og 2021 sem beindi því til heilbrigðisráðuneytisins að skoða það frekar. Erindið var áréttað í bréfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem sent var öllum forstöðumönnum opinberra stofnana í ágúst 2024.
Gerviverktaka brýtur gegn skattalöggjöf
Með gerviverktöku er átt við samning sem ber flest einkenni hefðbundins launasamnings atvinnurekanda við launamann en er kallaður verktakasamningur. Þetta form felur í sér að skattar eru ekki greiddir í samræmi við þær skyldur sem hvíla á launagreiðanda. Dæmi eru um að heilbrigðisstofnunum hafi verið endurákvarðaðir skattar vegna samninga af þessu tagi þar sem um gerviverktöku hefur verið að ræða en slíkir samningar brjóta gegn skattalöggjöfinni.
Heilbrigðisráðuneytið ákvað fyrir tveimur árum að kalla eftir upplýsingum frá heilbrigðisstofnunum um umfang verktakasamninga við heilbrigðisstarfsmenn. Ráðuneytið fundaði einnig með forstjórum stofnananna um þessi mál. Var þar farið yfir leiðsögn skattayfirvalda um einkenni gerviverktöku, áréttað að slíkir samningar brjóti gegn skattalöggjöfinni og að auki bent á ýmis fleiri sjónarmið um bæði réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem orki tvímælis í slíkum samningum og sama máli gegni um jafnræðisreglu og gildandi rétt um opinber innkaup. Ráðuneytið fundaði aftur með forstjórum stofnananna í desember sl. og var sameiginleg niðurstaða fundarins að stefna að því að frá og með 1. janúar 2026 yrði búið að fella úr gildi alla verktakasamninga sem að mati forstjóranna féllu undir skilgreiningu á gerviverktöku.
Ábyrgð forstjóra að meta lögmæti verktakasamninga
Heilbrigðisráðuneytið fór þess á leit í bréfi til forstjóra heilbrigðisstofnana 21. mars 2025 að þeir færu yfir verksamninga sína við heilbrigðisstarfsmenn með sjónarmið um gerviverktöku í huga og leituðust til frambúðar eftir því að manna starfsemi sína með fastráðnu launafólki væri það unnt. Tekið var fram að í undantekningartilvikum væri unnt að gera verktakasamninga svo fremi sem þeir samrýmdust gildandi lögum og reglum. Ráðuneytið ítrekaði erindi sitt í bréfi til forstjóra 28. maí sl. með það að markmiði að tryggja að allir vinnusamningar heilbrigðisstofnana við starfsfólk væru í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og kjarasamninga. Tekið var fram að sjónarmið sem rakin væru í bréfinu ættu einnig við um verktakasamninga við einstaklinga sem þegar væru að stórum hluta í starfi hjá viðkomandi stofnun, en dæmi um slíkt væru ferliverkasamningar. Áhersla hefur verið lögð á að breytingar yrðu gerðar í áföngum og að ekki yrðir rof á þjónustu við sjúklinga.
Fylgiskjöl
Meðfylgjandi er dreifibréf fjármála- og efnahagsráðuneytisins til forstöðumanna stofnana ríkisins vegna verktakasamninga og gerviverktöku með leiðbeiningum um gerð verktakasamninga og hvaða þættir það eru sem einkenna gerviverktakasamninga sem beri að forðast. Einnig fylgja hér bréf heilbrigðisráðuneytisins til forstjóra heilbrigðisstofnana um sama efni, þ.e. um verktakasamninga og gerviverktöku, dags. 21. mars sl. og bréf um verktakasamninga heilbrigðisstofnana dags. 28. maí 2025.
• Bréf heilbrigðisráðuneytisins um verktakasamninga og gerviverktaka, dags. 21. mars 2025, ásamt dreifibréfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins til forstöðumanna ríkisstofnana
• Bréf heilbrigðisráðuneytisins um verktakasamninga heilbrigðisstofnana, dags. 28. maí 2025