03 október 2025

/

Stefna ríkisins í mannauðsmálum gefin út í fyrsta sinn

{image.Description}

„Mannauður í lykilhlutverki“ er yfirskrift stefnu ríkisins í mannauðsmálum, sem gefin var út í dag. Stefnan er sú fyrsta sinnar tegundar hjá ríkinu og í henni eru sett fram fimm markmið og áherslur sem er ætlað styðja við stefnumiðaða og aðlögunarhæfa mannauðsstjórnun og skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem hæfni starfsfólks fær notið sín til fulls. Meðal áherslnanna er að skýr tilgangur sé í störfum og verkum starfsfólks ríkisins og að starfsfólk fái tækifæri til að þróa hæfni sína í starfi.

Samhliða er gefin út aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem kveður á um mælikvarða og verklag til að styðja við markmiðin.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti af þessu tilefni ávarp á mannauðsdegi ríkisins þar sem hann lagði áherslu á að fólk geti treyst á að ríkið veiti vandaða grunnþjónustu.

Þar væri starfsfólk ríkisins í lykilhlutverki. „Vinnustaðurinn ríkið þarf að laða að sér fjölbreyttan hóp sem býr yfir mismunandi reynslu og færni og tekst á við krefjandi verkefni. Mannauður ríkisins er lykillinn að því að við getum veitt góða opinbera þjónustu. Það er hlutverk okkar,“ sagði ráðherra.