26 nóvember 2025

/

Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála komin út

{image.Description}
Ari Karlsson formaður kærunefndar jafnréttismála og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála tók við ársskýrslu kærunefndar jafnréttismála fyrir árið 2024 á fundi hennar og Ara Karlssonar, formanns kærunefndar jafnréttismála, í dag.

Á fundinum kynnti formaður nefndarinnar skýrsluna fyrir ráðherra og skýrslan hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins.

Í skýrslunni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar vegna ársins 2024. Skýrslan er fjórða skýrsla kærunefndar jafnréttismála um störf nefndarinnar sem skilað er til ráðherra sem fer með jafnréttismál í samræmi við lög nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála.

Fram kemur að á árinu 2024 hafi borist samtals 34 mál til nefndarinnar og að aldrei hafi jafn mörg mál borist nefndinni á einu ári. Nefndin afgreiddi 18 mál á árinu og flest þeirra vörðuðu atvik innan vinnumarkaðar og þá einkum ráðningar og skipanir á grundvelli kyns.