12 maí 2026

/

Stefnu ríkisins í mannauðsmálum fylgt eftir á fundi mannauðsstjóra

{image.Description}

Mikilvægi reglulegrar endurgjafar og markvissra starfsmannasamtala var helsta umræðuefnið á fundi mannauðsstjóra hjá ríkinu þann 7. maí sl. Þessir tveir þættir eru lykilþættir árangursríkrar stjórnunar. Fundurinn er liður í reglulegu samtali mannauðssérfræðinga fjármála- og efnahagsráðuneytisins við stjórnendur mannauðsmála um stefnu ríkisins í mannauðsmálum.

Á fundinum var rýnt í niðurstöður könnunarinnar Stofnun ársins þar sem m.a. kemur fram að jákvæð fylgni sé á milli skýrra væntinga frá yfirmanni og starfsánægju sem og starfsmannasamtala og líðan í starfi.

Störf með tilgang og eftirsóknarvert starfsumhverfi

Fundurinn er liður í innleiðingu Stefnu ríkisins í mannauðsmálum sem var gefin út í október í fyrra. Þar eru sett fram fimm markmið og áherslur sem er ætlað er styðja við stefnumiðaða og aðlögunarhæfa mannauðsstjórnun og skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem hæfni starfsfólks fær notið sín til fulls. Samhliða var gefin út aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem kveður á um mælikvarða og verklag til að styðja við markmiðin. Sérstaklega var fjallað um tvær af þessum áherslum á fundinum:

  • Tilgangsdrifin störf og verkefni: Að skýr tilgangur sé í störfum og verkum, þ.e. skýr tenging við tilgang þjónustu á hverjum tíma.
  • Eftirsóknarvert starfsumhverfi: Að styðja við heilbrigt starfsumhverfi og þjónustu með áherslu á virðingarrík samskipti, öflug teymi, sýnilegan árangur og tekið sé eftir því sem vel er gert.

Mikil og góð fræðsla fyrir stjórnendur ríkisins

Farið var yfir starfsemi Stjórnendaseturs ríkisins og það úrval námskeiða og fræðslu sem stendur forstöðumönnun ríkisins til boða á vegum sérfræðinga fjármála- og efnahagráðuneytisins. Stjórnendasetrið heldur utan um framkvæmd stjórnendastefnu ríkisins og hefur það að markmiði að efla stjórnunar- og leiðtogahæfni hjá ríkinu.