02 nóvember 2009Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Varasjóður húsnæðismála. Ársskýrsla 2008.
<p>Greiðslur Varasjóðs húsnæðismála vegna sölu félagslegra íbúða sveitarfélaganna námu á árinu 2008 samtals 49,9 milljónum króna. Vegna rekstrarhalla og auðra íbúða sveitarfélaga voru greiddar alls 69,2 milljónir króna. Samtals urðu greiðslur úr sjóðnum á árinu 2008 því 119,2 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársskýrslu Varasjóðs húsnæðismála fyrir árið 2008. </p>