Skrifstofa alþjóðamála
Skrifstofustjóri: Valgerður María Sigurðardóttir
Skrifstofan hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða afbrotavarnir, landamæravörslu og málefni útlendinga.
Skrifstofan sinnir stefnumótun á málefnasviðinu, hefur umsjón með löggjöf og fylgist með því að hún taki til allra nauðsynlegra þátta, vinnur að því að stjórnsýsluframkvæmd sé í samræmi við lög og að markmið stefnumótunar ráðherra náist með skilvirkum og markvissum hætti.
Jafnframt sinnir skrifstofa alþjóðamála almennri upplýsingagjöf til Alþingis og nefnda þingsins og hefur fyrirsvar fyrir hönd Stjórnarráðsins gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á málefnasviðinu.
Málaflokkar skrifstofunnar eru eftirfarandi:
- Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
- Peningaþvætti
- Spilling og mútur
- Netbrot
- Varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra
- Landamæravarsla
- Schengen-samstarf
- Framsal og afhending sakamanna
- Ríkisborgararéttur
- Dvalarleyfi
- Alþjóðleg vernd
Mikilvægi alþjóðlegs samstarfs á málefnasviðinu fer vaxandi, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins, Schengen-samstarfsins, FATF (Financial Action Task Force) og EES-samningsins. Þá tekur Ísland þátt í samstarfi innan OECD og Eystrasaltsráðsins, einkum á sviði aðgerða gegn brotastarfsemi.
Á skrifstofu alþjóðamála starfa tíu sérfræðingar auk skrifstofustjóra.
Um ráðuneytið