Skrifstofa borgaralegra réttinda
Skrifstofustjóri: Berglind Bára Sigurjónsdóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Rósa Dögg Flosadóttir
Helstu verkefni
Undir skrifstofu borgaralegra réttinda heyra m.a. eftirfarandi verkefni:
Fjölskyldumál o.fl.
Undir þetta svið heyra barnaréttur, innheimta meðlaga, málefni ættleiðinga, brottnámsmál, lögræðismál, erfðamál,dánarbú, hjúskapur.. Verkefni skrifstofunnar er að halda utan um breytingar á lögum og reglum settum á þeim grundvelli, annast leiðbeiningar og samskipti við önnur stjórnvöld og borgarana, sem og margvísleg stjórnsýsluverkefni sem tilheyra þessum málaflokkum.
Skrifstofan fer einnig með hlutverk miðstjórnvalds á grundvelli tveggja Haagsamninga, annars vegar á sviði ættleiðinga og hins vegar er snýr að brottnámi barna. Þá er jafnframt um að ræða alþjóðlega samvinnu á umræddu sviði.
Þjóðkirkjan, trúfélög og lífsskoðunarfélög, sóknargjöld og kirkjugarðar
Skrifstofan hefur umsjón með því að ríkisvaldið veiti þjóðkirkjunni þann stuðning sem því ber að veita henni lögum samkvæmt. Skrifstofan annast margvíslega framkvæmd og samskipti á grundvelli laga um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, laga um sóknargjöld o.fl. og laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.
Happdrætti og opinberar fjársafnanir
Stefnumótun og framkvæmd laga um happdrætti og opinberar fjársafnanir eru á verksviði skrifstofunnar. Í því felst m.a. að setja reglugerðir á grundvelli laganna og hafa almennt eftirlit með starfsemi happdrætta á grundvelli sérlaga, auk þess að skipa eftirlitsmenn með lögbundnu happdrættunum. Sýslumaðurinn á Suðurlandi veitir leyfi fyrir happdrættum sem ekki eru með peningavinningum og opinberum fjársöfnunum.
Málefni sýslumanna
Skrifstofan annast málefni sýslumanna hvað varðar samskipti við embættin, stjórnsýslulegt eftirlit og stefnumótun. Þá hefur skrifstofan yfirumsjón með framkvæmd þinglýsingarlaga sem sýslumenn annast, auk þess að hafa m.a. yfirumsjón með lögum um greiðslur ríkissjóðs til þolenda afbrota.
Persónuvernd
Persónuvernd heyrir undir skrifstofu borgaralegra réttinda en lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga er ætlað að stuðla að því að með persónuupplýsingar sé farið í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs.
Málefni Þjóðskrár Íslands
Skrifstofan annast málefni Þjóðskrár Íslands hvað varðar stefnumótun, stjórnsýslueftirlit og samskipti við stofnunina. Þá hefur skrifstofan yfirumsjón með lögum um Þjóðskrá Íslands, lögum um skráningu einstaklinga, lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um vegabréf og lögum um nafnskírteini.
Um ráðuneytið