Skrifstofa löggjafarmála

Skrifstofustjóri: Hafdís Helga Ólafsdóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Una Björk Ómarsdóttir

Skrifstofan annast framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa almennt, sbr. einkum eftirfarandi verkefni:

  • Yfirferð stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna allra ráðuneyta, lögfræði, lagatækni, málfar, o.fl.
  • Forysta og samhæfing í gæðamálum stjórnarskjala, þ.m.t. formennska í löggjafarhópi ráðuneyta og samskipti við skrifstofu Alþingis.
  • Tölfræði um stöðu og þróun á þessu sviði.
  • Yfirlit yfir stöðu og framvindu mála á þingmálaskrá ríkisstjórnar.
  • Leiðarvísar á innri vef STJR um undirbúning og frágang frumvarpa og þingsályktunartillagna (sbr. m.a. handbók).
  • Samráðsgátt, yfirumsjón/ritstjórn, þróunarverkefni, leiðarvísir á innri vef STJR.
  • Fræðsla og námskeiðahald um gerð og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna.
  • Erlent samstarf á þessu sviði, einkum á vettvangi OECD.