Skrifstofa jafnréttismála

Skrifstofustjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Rán Ingvarsdóttir

Á skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála starfa sex sérfræðingar auk skrifstofustjóra. Skrifstofan fer með stefnumótun á sviði jafnréttis- og mannréttindamála, sinnir alþjóðastarfi og hefur fyrirsvar fyrir hönd Stjórnarráðsins gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á sviði jafnréttismála. Jafnframt sinnir skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála almennri upplýsingagjöf til Alþingis og nefnda þingsins. Skrifstofan vinnur í samstarfi við önnur ráðuneyti til að tryggja samhæfingu og skilvirka framkvæmd þar sem jafnréttis- og mannréttindamál snerta starfssvið allra ráðuneyta.

Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 5/2025 fer dómsmálaráðuneyti með mál er varða jafnréttis- og mannréttindamál, nánar tiltekið:

Mannréttindi og mannréttindasáttmála, að undanskildum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Jafnréttismál, þar á meðal:

  • Jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna
  • Stjórnsýslu jafnréttismála
  • Jafna meðferð utan vinnumarkaðar
  • Kynrænt sjálfræði
  • Jafnréttisstofu
  • Kærunefnd jafnréttismála
  • Jafnréttissjóð Íslands
  • Sérfræðinefnd um breytingar á kynskráningu barna og varanlegar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum barna
  • Mansal
  • Vændi
  • Kynbundið ofbeldi