Skrifstofa löggæslumála

Skrifstofustjóri: Drífa Kristín Sigurðardóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Guðmundur Bjarni Ragnarsson

Skrifstofan hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða almannaöryggi og öryggismál, þ.e.a.s. málefnum löggæslu og embættum lögreglu, landhelgisgæslu, almannavörnum og leit og björgun.

Skrifstofan sinnir stefnumótun á málefnasviðinu, ber ábyrgð á gerð lagafrumvarpa og reglugerða innan málaflokksins, vinnur að því að stjórnsýsluframkvæmd sé í samræmi við lög og að markmið stefnumótunar ráðherra náist með skilvirkum og markvissum hætti.

Jafnframt sinnir skrifstofa löggæslumála almennri upplýsingagjöf til Alþingis og nefnda þingsins og hefur fyrirsvar fyrir hönd stjórnarráðsins gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á málefnasviðinu.

Helstu málaflokkar skrifstofunnar eru eftirfarandi:

  • lögregla
  • landhelgisgæsla
  • almannavarnir
  • vöktun og vernd mikilvægra samfélagsinnviða
  • vopnamál
  • öryggisþjónusta í atvinnuskyni
  • öryggis- og björgunarmál, leit og björgun
  • samræmd neyðarsvörun
  • öryggis- og varnarmál


Á skrifstofu löggæslumála starfa sjö sérfræðingar auk skrifstofustjóra.