Konur og siglingar: Hvað er svona merkilegt við það?
Alþjóðasiglingadagurinn 26. september 2019 var helgaður konum með þemanu „Empowering women in the maritime community“. Af því tilefni stóðu Siglingaráð og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 26. september undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?
Á ráðstefnunni var fjallað um sögu íslenskra kvenna á sjó og erlendir og innlendir fyrirlesarar sögðu frá starfsvali sínu og reynslu af samvinnu og sambúð kynjanna í siglingum. Þá var leitað svara við því hvers vegna konur eru svo fáar til sjós og í siglingum og hvernig megi gera störf til sjávar eftirsóknarverð fyrir konur.
Ráðstefnan var haldin í Kaldalóni í Hörpu frá kl. 13-16.
Dagskrá:
13:00 - Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson setur ráðstefnuna.
„Women in the Maritime Community.“
Joanna Nonan, aðmíráll í bandarísku strandgæslunni (Rear Admiral US Coast guard).„All Aboard: Icelandic Women, Equality and Opportunity at Sea“
Margaret Willson, mannfræðingur og prófessor við Washington-háskóla.Átakið #kvennastarf“
Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og véltækniskólans.14:30 - Hlé
„Í blíðu og stríðu. Reynslusaga konu til sjós.“
Jónína Hansen, stýrimaður.„Vélfræði, sálfræði, stjórnun.“
J. Snæfríður Einarsdóttir, vélfræðingur og ráðgjafi hjá HSE Consulting.„Sjómannslífið.“
Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur.„Af hverju ekki ég.“
Halldóra Kristín Unnarsdóttir, strandveiðikona af SnæfellsnesiSamantekt: Af hverju eru ekki fleiri konur á sjó?
16:00 - Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur lokaorð og slítur ráðstefnu.
Innviðaráðuneytið