Samráðsfundir með innviðaráðherra 2025

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hélt opna íbúafundi í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins í ágúst 2025 undir yfirskriftinn Fjárfest í innviðum til framtíðar. Sjö fundir voru haldnir í Borgarnesi, á Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjanesbær. Fundirnir sem voru öllum opnir voru allir mjög vel sóttir og umræður líflegar.

Tilgangur fundanna var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.

Dagskrá funda í ágúst

Dagskrá samráðsfunda og skráningarhlekkir.

Dags.

Staðsetning (salur)

 Skráning

 Fundartími

12. ágúst

Akureyri (Múlaberg)

 Lokið

16:45-18:15

13. ágúst

Borgarnes (Hjálmaklettur)

 Lokið

16:30-18:00

18. ágúst

Reykjanesbær (Radisson Park Inn)

 Lokið

16:30-18:00

19. ágúst

Ísafjörður (Edinborgarhúsið)

 Lokið

16:30-18:00

20. ágúst

Selfoss (Hótel Selfoss)

 Lokið

16:30-18:00

25. ágúst

Blönduós (Hótel Blönduós, Krúttið)

 Lokið

16:30-18:00

26. ágúst

Egilsstaðir (Hótel Hérað)

 Lokið

16:30-18:00

28. ágúst

Innviðaþing (Hilton Nordica)

 Lokið

allan daginn

Reglulegt samráð

SJÁ EINNIG:
Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - [email protected]

Sjá einnig: