Ferðavenjukönnun 2025
Ný ferðavenjukönnun var gerð í október 2025 en var kynnt sumarið 2026. Í könnuninni eru ferðavenjur fólks mældar fyrir alla samgöngumáta og niðurstöður teknar saman fyrir landið allt, einstaka landshluta, sveitarfélög og hverfi þar sem það á við.
Ferðavenjukönnunin nær til alls landsins, en það var fyrst gert í könnuninni árið 2019. Sambærilegar kannanir voru gerðar fjórum sinnum áður fyrir höfuðborgarsvæðið. Þau sem stóðu að könnuninni að þessu sinni eru: Innviðaráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Vegagerðin, Strætó og Betri samgöngur.
Daglegum ferðum landsmanna í umferðinni fjölgar lítillega í nýrri könnun. Daglegar ferðir á mann eru nú 3,3 að meðaltali á landsvísu, samanborið við 3,2 ferðir árið 2022. Ferðatíðni er þó enn undir því sem mældist árið 2019 (3,7 ferðir). Langflestir fara tvær til þrjár ferðir á dag, eða 47% landsmanna. Ungmenni á aldrinum 13–17 ára fara flestar ferðir, eða 4,6 að jafnaði á dag, en ferðatíðni minnkar almennt með hækkandi aldri. Elsti hópurinn fer fæstar ferðir, eða 2,4 að jafnaði á dag. Þá fara þau sem eru bæði í skóla og vinnu flestar ferðir, en þau sem eru hvorki í skóla né vinnu fæstar.
Niðurstöður og skýrslur ferðavenjukönnunar 2025
Heildarskýrslur
Landshlutar
Reykjavík og Seltjarnarnes
Sjá einnig:
Ferðavenjukannanir
Ferðavenjukönnun 2022Ferðavenjukönnun 2019Samgönguáætlanir
Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040Lög og reglugerðir
Lög um samgönguáætlun, nr. 33/2008Samgönguáætlun