Samgönguáætlun
Ráðherra skal leggja tillögu til þingsályktunar um stefnu í samgöngumálum, samgönguáætlun, til fimmtán ára fyrir Alþingi að lágmarki á þriggja ára fresti. Með henni setja stjórnvöld fram stefnu og markmið fyrir allar greinar samgangna. Í samgönguáætlun er einnig kynnt fimm ára aðgerðaáætlun um framkvæmdir á fyrsta tímabili stefnunnar.
Ný samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt aðgerðaáætlun til 2030 var samþykkt á Alþingi 12. júní 2026. Lögð er áhersla á kraftmiklar og arðsamar framkvæmdir um land allt sem efla umferðaröryggi, greiða fyrir umferð, stytta tengingar milli byggða og atvinnusvæða og bæta lífsgæði íbúa. Ný jarðgangaáætlun er kynnt en þar eru Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán sett í forgang.
- Stefnumótandi samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 (stefna til fimmtán ára)
Stefnumótun og áætlanagerð
Samgönguáætlun tekur til stefnu, fjáröflunar og útgjalda allra greina samgangna, þ.e. flugmála, vegamála og siglingamála, þ.m.t. almenningssamgangna, hafnamála, sjóvarna, öryggismála og umhverfismála samgöngugreina. Þar skal skilgreina það grunnkerfi sem ætlað er að bera meginþunga samgangna og gera grein fyrir ástandi og horfum í samgöngum í landinu. Við gerð samgönguáætlunar skal m.a. byggja á þeim meginmarkmiðum að samgöngur séu greiðar, hagkvæmar, öruggar og umhverfislega sjálfbærar auk þess sem þær stuðli að jákvæðri byggðaþróun.
Við gerð samgönguáætlunar skal einnig tekið mið af eftirfarandi markmiðum:
- Að ná fram samræmdri forgangsröð og stefnumótun.
- Að ná fram hagkvæmri notkun fjármagns og mannafla.
- Að ná fram samræmdu skipulagi samgöngugreina og samstarfi stofnana ráðuneytisins og fyrirtækja á vegum þess.
Samgönguáætlun verður til í nokkrum þrepum. Ráðherra leggur fram áherslur sínar fyrir samgönguráð sem mótar tillögu að samgönguáætlun. Við undirbúning tillögunnar fer fram víðtækt samráð við hagsmunaaðila, kynningarfundir haldnir en síðasti hlutinn í samráðsferli er samgönguþing sem haldið er reglulega. Að því loknu skilar samgönguráð ráðherra tillögu að samgönguáætlun. Það er loks ráðherra sem leggur fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun til umfjöllunar.
Skýrslur um framkvæmd samgönguáætlunar
Ráðherra skal árlega leggja fram á Alþingi skýrslu um framkvæmd samgönguáætlunar. Vegagerðin, Samgöngustofa og Isavia ohf. leggja til efni við gerð skýrslunnar.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um samgönguáætlun, nr. 33/2008Lög um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfðuborgarsvæðinu, nr, 81/2020Samgönguáætlanir
Samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034Samgönguáætlun fyrir árin 2019-2033Aðgerðaáætlun í samgöngum 2019-2023Samgönguáætlun