26 maí 2025

/

Sjávarútvegurinn, samfélagið og framtíðin - grein fyrir Sjómannadagsblað Austurlands maí 2025

Sjávarútvegurinn, samfélagið og framtíðin

Á sjómannadaginn fögnum við þeim sem daglega halda út í óvissu hafsins með reynslu, þekkingu, elju og hugrekki að leiðarljósi.

Sjávarútvegur er og verður einn helsti máttarstólpi þjóðarinnar. Við höfum byggt upp öfluga atvinnugrein sem stendur á traustum grunni. Hún hefur mótað byggðir, efnahag okkar og menningu. En við megum ekki taka hana sem sjálfsögðum hlut. Sjálfbær nýting sjávarauðlinda krefst stöðugrar vöktunar og ábyrgrar stjórnunar – en ekki síst metnaðar.Við viljum tryggja að Ísland sé áfram í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun og umhverfisvænni þróun í sjávarútvegi.

Framundan eru spennandi tækifæri og krefjandi verkefni. Tæknibreytingar, þróun vistvænna veiða, nýting hliðarafurða og vöxtur bláa hagkerfisins bjóða upp á nýjar leiðir til verðmætasköpunar. En framtíðin snýst ekki aðeins um tæki og tól – hún snýst líka um fólk.

Okkar sameiginlega ábyrgð er að skapa aðstæður þar sem ungt fólk sér sjómennsku sem raunhæfan og spennandi valkost. Þar gegna strandveiðar mikilvægu hlutverki, ekki síst þegar kemur að fjölbreytni og nýliðun í greininni.

Við þurfum líka að hlusta – á sjómenn, vísindamenn og samfélögin sem lifa og starfa í tengslum við sjóinn. Það er í slíku samráði sem við mótum stefnur sem byggja á reynslu, gögnum og framtíðarsýn.

Kæru sjómenn,
til hamingju með daginn – og takk fyrir ykkar framlag!


Efnisorð