Styrkir og sjóðir

Á vegum atvinnuvegaráðuneytisins eru eftirfarandi sjóðir starfræktir:

FiskeldissjóðurFlugþróunarsjóðurFramkvæmdasjóður ferðamannastaðaMatvælasjóðurUmhverfissjóður sjókvíaeldisVerkefnasjóður sjávarútvegs

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra

Við úthlutun er horft til ýmissa þátta, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum þarf að að fara í Eyðublöð og velja viðeigandi eyðublað undir atvinnuvegaráðuneytinu.

Umsóknarfrestur verður tilkynntur á næstunni.

Eftirtalin gögn skulu fylgja með umsóknum:

  • Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur ásamt upplýsingum um aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
  • Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið.
  • Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra.
  • Lýsing á því hvernig árangur verkefnisins verði metinn.
  • Tíma- og verkáætlun.
  • Fjárhagsáætlun, þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
  • Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið [email protected].

Reglugerð um styrkveitingar ráðherra