Um ráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars árið 2025.

Ráðuneytið byggir á grunni þeirra málefna sem heyrðu undir matvælaráðuneytið, sjávarútveg, landbúnað lagareldi, matvæli og matvælaöryggi. Að auki hafa málefni viðskipta, neytendamála og ferðamála hafa verið færð til ráðuneytisins frá fyrrum menningar- og viðskiptaráðuneyti ásamt málefnum iðnaðar sem voru færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Málefni skógræktar og landgræðslu sem heyrðu undir matvælaráðuneyti voru færð til umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytis.

Ráðuneytisstjóri er Kolbeinn Árnason.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (14.3.2025).

Nánar um skipulag ráðuneytisins .