30 apríl 2026

/

Ávarp ráðherra á ráðstefnu um Egilsstaðaflugvöll - 30. apríl 2026

Góðan dag kæru gestir,

Það er mér mikið ánægjuefni að vera hér með ykkur á þessari ráðstefnu um flug um Egilsstaðaflugvöll. Það er sömuleiðis gleðilegt að sjá hér saman komna fulltrúa samgangna, atvinnulífs og ferðaþjónustu til að taka þátt í samtali um framtíð flugs á Íslandi.

Það er brýnt að ræða hlutverk Egilsstaðaflugvallar í samhengi flugsamgangna, bæði á landsvísu og í alþjóðlegu samhengi. Á því leikur enginn vafi. Enda gefst okkur hér tækifæri til að miðla þekkingu, hlýða á sjónarmið lykilaðila og ræða þau tækifæri og áskoranir sem fram undan eru.

Markmiðið er að efla sameiginlega sýn og varpa ljósi á hvernig Egilsstaðaflugvöllur getur styrkt stöðu Austurlands og landsins alls til framtíðar.

Flug er í dag miklu meira en bara leið til að komast á milli staða. Það er lykilinnviður sem mótar byggðaþróun, styður við atvinnulífið og tengir Ísland við umheiminn. Þar gegnir Egilsstaðaflugvöllur mikilvægu hlutverki, bæði fyrir Austurland og sem hluti af heildarkerfi flugsamgangna landsins.

Eitt af viðfangsefnum dagsins eru tækifæri í millilandaflugi í tengslum við ferðaþjónustu, en jafnframt möguleikar þegar kemur að vöruflutningum, hlutverk vallarins sem varaflugvallar og mikilvægi hans fyrir samgöngukerfi landsins í heild. Þetta eru allt þættir sem tengjast beint því hvernig við nýtum innviði landsins á skilvirkan og framsýnan hátt.








Flugþróunarsjóður er lykilstoð í uppbyggingu flugsamgangna á Íslandi og hefur það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að auka tímabundið fjárframlög sjóðsins um 100 milljónir króna á þessu ári undirstrikar mikilvægi þessa málaflokks og þá skýru stefnu að efla flugtengingar sem grunn að atvinnulífi, byggðaþróun og fjárfestingu til framtíðar.
Reynslan af uppbyggingu millilandaflugs um Akureyri, ekki síst með komu easyJet, sýnir að slík þróun skilar raunverulegum árangri. Beinar tengingar við útlönd hafa stuðlað að aukinni fjárfestingu í gistingu og afþreyingu, lengra ferðatímabili og stöðugri rekstri fyrirtækja. Áhrifin ná jafnframt út fyrir ferðaþjónustuna sjálfa og þeirra gætir víðar um Norður- og Norðausturland.






Slíkur árangur næst þó ekki á einni nóttu, heldur er langtímaverkefni sem krefst þrautseigju, samstillts átaks og stöðugrar vinnu. Austurland á þar mikið inni og tækifærin eru fjölmörg, enda býr svæðið yfir ríkulegu úrvali af afþreyingu og þjónustu, einstæðri náttúru og öflugri menningu.
Í morgun tilkynnti ég um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, en markmið sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun. Það er mjög ánægjulegt að segja frá því að af þeim átján verkefnum sem hlutu styrk úr sjóðnum í ár eru sjö þeirra á Austurlandi, sem er til marks um þau tækifæri sem eru til staðar á svæðinu og metnað fólks til að standa vel að verki.







Egilsstaðaflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur og stuðlar þannig að öryggi og áreiðanleika flugsamgangna í landinu. Þetta hlutverk nær langt út fyrir svæðisbundna hagsmuni og snýr að því að flugkerfið í heild virki sem skyldi. Á tímum aukinnar óvissu og náttúruvár, þar sem eldvirkni og veðuröfgar geta haft áhrif á samgöngur, verður þetta enn mikilvægara. Traustir varaflugvellir eru því lykilinnviðir sem tryggja að flug haldi áfram að ganga örugglega og án truflana.
Það er því gott að geta sagt frá því að á fyrsta tímabili nýrrar samgönguáætlunar sem gildir til ársins 2030 eru 3.9 milljarðar eyrnamerktir Egilsstaðaflugvelli. Það er meira en tvöföldun á framkvæmdafé frá síðustu áætlun. Þetta sýnir ríkan vilja ríkisstjórnarinnar og skilning á mikilvægi Egilsstaðaflugvallar. Með þessu verður hægt að flýta nauðsynlegum og löngu tímabærum framkvæmdum. Það skiptir máli.






Kæru gestir
Ný atvinnustefna stjórnvalda setur fram skýra og samræmda sýn um hvernig efla megi útflutning, auka framleiðni og byggja upp fjölbreytt atvinnulíf um allt land. Þar er lögð áhersla á að skapa stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi og styðja markvisst við þær greinar sem standa undir verðmætasköpun til framtíðar.
Jafnframt er undirstrikað mikilvægi öflugra samgangna og tenginga við alþjóðlega markaði sem forsenda þess að þessi sýn gangi eftir. Ferðaþjónustan er þar ein af meginstoðum útflutnings, en áframhaldandi þróun hennar byggir á aukinni framleiðni, nýsköpun og skýrri umgjörð. Atvinnustefnan kallar því á markvissar aðgerðir sem styðja við framgang greinarinnar og styrkja um leið aðrar tengdar atvinnugreinar,







Þær aðgerðir sem nú eru í undirbúningi í mínu ráðuneyti og ég hyggst leggja fram á haustþingi eru liður í aðgerðaáætlun atvinnustefnunnar og falla jafnframt að markmiðum ferðamálastefnu til 2030. Í þeim felst að skapa ferðaþjónustunni skýrari og fyrirsjáanlegri umgjörð til lengri tíma og styrkja þannig rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni greinarinnar. Unnið er að heildstæðri laga- og stjórnsýsluumgjörð ferðaþjónustu, þar sem meðal annars er horft til aðgengis og öryggis á ferðamannastöðum, opinberrar markaðssetningar, bættrar gagnaöflunar og rannsókna, sem og umgjörðar um náttúru- og innviðagjald.
Þetta eru skref í þá átt að byggja upp sterkara og sjálfbærara umhverfi fyrir ferðaþjónustu og tengdar atvinnugreinar um land allt. Þar skiptir samtalið sem hér fer fram í dag miklu máli, enda er það sameiginlegt verkefni okkar allra að móta skýra sýn til framtíðar.
Ég hlakka til að hlýða á erindi dagsins og taka þátt í umræðunni með ykkur.
Takk fyrir.


Efnisorð