ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
08 janúar 2001
/
Ávarp sjávarútvegsráðherra við kynningu á fyrirhuguðu rannsóknahúsi við Háskólann á Akureyri.
Fundarstjóri, ágætu fundarmenn
Mér er það mikil ánægja að vera staddur á Akureyri í dag í þeim tilgangi að ræða um byggingu rannsóknahúss hér við Háskólann. Sjávarútvegsráðuneytið og stofnanir þess hafa átt mikið og gott samstarf við Háskólann á Akureyri, en hann er í mínum huga sú stofnun sem mest kveður að á landsbyggðinni og er óhætt að segja að hann sé mikil lyftistöng fyrir Akureyri og byggðirnar hér í kring. Á Norðurlandi eru mörg öflug útgerðar- og matvælafyrirtæki og við Eyjafjörð eru tvö af öflugustu útgerðarfyrirtækjum landsins. Á Akureyri er því ákjósanlegt starfsumhverfi fyrir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Hafrannsóknastofnunina.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hóf starfsemi sína á Akureyri árið 1979 í húsnæði matvælafyrirtækisins K.Jónsson & Co. Fljótlega eftir að Háskólinn á Akureyri var stofnaður flutti Rf. starfsemi sína í húsnæði skólans að Glerárgötu 36 og hefur hún verið þar sl. 10 ár .
Frá upphafi hefur starfsemin byggst á þjónustu við fiskiðnað en þar sem í Eyjafirði er stundaður fjölbreytilegur matvælaiðnaður hefur þróunin orðið sú að útibúið hefur aukið þjónustu við annan matvælaiðnað jafnt og þétt. Sérstök áhersla hefur verið lögð á þjónustu á sviði örveru- og efnamælinga.
Með tilkomu Háskólans á Akureyri er óhætt að segja að starfsemi Rf hafi eflst verulega því auk þess sem sérfræðingar stofnunarinnar stunda fjölbreyttar rannsóknir þá kenna þeir einnig við sjávarútvegsdeild skólans.
Auk starfseminnar hér á Akureyri er Rf. með útibú á Ísafirði, í Neskaupstað og Vestmannaeyjum. Það er stefna Rf að styrkja útibú sín þannig að þau verði virkur þátttakandi í að byggja upp og styrkja blómlegt atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins með rannsóknum, ráðgjöf og þjónustu. Hlutur rannsókna- og þróunarverkefna í samstarfi við fyrirtæki hefur verið að aukast og sem dæmi um verkefni sem nú er unnið að hér á Akureyri má nefna; geymsluþolsspálíkön fyrir ferskan fisk, mælingar á sýklum í ýmsum matvælum t.d. mjólk og mjólkurafurðum og í lúðu í tengslum við lúðueldi.
Útibú Hafrannsóknastofnunarinnar sem eru auk Akureyrar á Höfn, í Vestmannaeyjum, Ólafsvík og á Ísafirði gegna þýðingarmiklu hlutverki við gagnasöfnun hvers konar og til þess að afla upplýsinga um gang veiðanna í kringum landið. Útibúin eru nauðsynlegur hluti tengslanets stofnunarinnar við sjávarútveginn í landinu.
Frá stofnun útibús Hafrannsóknastofnunarinnar á Akureyri í byrjun níunda áratugarins hafa starfsmenn þess tekið þátt í margvíslegum rannsóknum stofnunarinnar á starfssvæði þess, auk reglubundinnar sýnatöku úr lönduðum afla. Má þar m.a. annars nefna togararall, innfjarða- og djúprækjurannsóknir, rannsóknir á þorskhrygningu, straumrannsóknir og ýmsar vistfræðirannsóknir, einkum í Eyjafirði.
Sérfræðingar útibúsins hafa einnig gegnt kennsluskyldu við Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri og hafa þeir ásamt sérfræðingum stofnunarinnar í Reykjavík séð m.a. um kennslu í fiskifræði, haffræði og sjávarlíffræði. Þannig hefur Hafrannsóknastofnunin á Akureyri styrkt rannsóknaumhverfið í bænum og eflt Háskólann á Akureyri.
Að lokum vil ég segja að það er í mínum huga enginn vafi á að sú aðstaða sem hér er verið að leggja grunn að mun í framtíðinni ekki aðeins efla starfsemi stofnana sjávarútvegsráðuneytisins á Akureyri, heldur um land allt og efla þær í að sinna mikilvægu rannsókna- og ráðgjafarhlutverki. Síðast en ekki síst mun rannsóknarhúsið styrkja til muna alla starfsemi Háskólans á Akureyri.