ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.

13 mars 2009

/

Öflug verslun eftir Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra


Gylfi Magnússon svarar grein Andrésar Magnússonar: "Mér er bæði ljúft og skylt að upplýsa að ég tel að verslun sé undirstöðuatvinnugrein. Ég vissi raunar ekki að það væri ágreiningur um það."




VEGNA greinar Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, í Morgunblaðinu 11. mars sl. er mér bæði ljúft og skylt að upplýsa að ég tel, líkt og hann, að verslun sé undirstöðuatvinnugrein. Ég vissi raunar ekki að það væri ágreiningur um það. Hann virðist hafa lesið eitthvað annað út úr ræðu sem ég flutti á alþingi 24. febrúar sl. Ég hvet Andrés til að lesa þá ræðu aftur, enda kemur m.a. skýrt fram í henni að það er þörf fyrir blómlega verslun á Íslandi og að verslunin muni rísa aftur, þótt nú sé mjög að henni þrengt, eins og mörgum öðrum atvinnugreinum.

Öll þjóðfélög hafa þörf fyrir blómlega verslun, bæði smásölu og heildsölu. Sú atvinnugrein gegnir veigamiklu hlutverki í nútíma hagkerfi og skapar bæði verðmæti og störf. Það skiptir miklu fyrir Íslendinga, bæði verslunarfólk og neytendur, að innlend verslun sé skilvirk, búi við góð skilyrði og innan greinarinnar sé heilbrigð og öflug samkeppni. Um þetta getur vart verið ágreiningur. Að þessu mun ég vinna sem viðskiptaráðherra.

Um ýmislegt annað í grein Andrésar virðumst við einfaldlega ósammála og verður væntanlega svo að vera. Ég tel að almennt sé skynsamlegt að hið opinbera veiti atvinnulífinu stuðning með almennum aðgerðum, sem koma öllum til góða, frekar en sértækum. Þar virðumst við ósammála.

Þá tel ég að við endurreisn íslensks atvinnulífs sé ráðlegt að huga að því hvað fór úrskeiðis á undanförnum árum og endurtaka ekki mistökin. Í ræðunni benti ég þannig m.a. á að ekki væri ráðlegt, m.a. vegna samkeppnissjónarmiða, að endurreisa í óbreyttri mynd viðskiptastórveldi sem nú eru fallin. Þar virðumst við einnig ósammála.

Höfundur er Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.

Grein birtist í Morgunblaðinu 13. mars 2009.



Efnisorð