ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
05 desember 2012
/
Blaðagrein um stofnun nýs ráðuneytis atvinnuvega- og nýsköpunar
Nýtt ráðuneyti allra atvinnugreina
Fyrsta september síðastliðinn tók til starfa ráðuneyti atvinnuvega- og nýsköpunar og með því hafa stjórnvöld og atvinnulífið eignast öflugt tæki til stefnumótunar, framþróunar og nýsköpunar. Markmiðið er skýrt og klárt – að búa eins vel og kostur er í haginn fyrir öflugt atvinnulíf.
Meðal þess sem gagnrýnt var í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var að stjórnsýslueiningarnar væru of veikburða og að styrkja þyrfti ráðuneytin. Með því að steypa saman iðnaðarráðuneytinu, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og viðskiptahluta efnahags- og viðskiptaráðuneytisins varð til öflugt 70 manna ráðuneyti atvinnuvega og nýsköpunar sem hefur afl og burði til að ráða við þau mikilvægu verkefni sem við blasa.
Það kann einhverja að reka í rogastans að í skipuriti nýja ráðuneytisins er ekki að finna nöfn hinna hefðbundnu atvinnugreina sem margar hverjar hafa hingað til átt sín eigin ráðuneyti. Þeim verður eftir sem áður sinnt af kostgæfni en til þess að takast á við ný tækifæri tókum við snemma þá ákvörðun að hólfa ekki atvinnugreinarnar niður hverja í sinn bás heldur nálgast þær út frá almennum starfsskilyrðum.
Þetta er að mínu viti holl og tímabær uppstokkun því að atvinnugreinar þróast með tímanum. Hvern hefði til dæmis órað fyrir því fyrir 25 árum síðan að árið 2012 yrði ferðaþjónustan ein af þeim þremur atvinnugreinum sem skapa okkur Íslendingum mestar gjaldeyristekjur. Hvað þá að uppgangur hinna svokölluðu skapandi greina myndi verða í líkingu við það sem raunin er. Það er ekki að ástæðulausu að síðara orðið í nafni hins nýja ráðuneytis skuli vera nýsköpun.
Stofnun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis ásamt stofnun fjármála- og efnahgasráðuneytis og umhverfis og auðlindaráðuneytis eru lokahnykkurinn á viðamikilli endurskipulagningu stjórnarráðsins sem mælt var fyrir um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðuneytum hefur fækkað úr 12 í 8 og fyrir vikið stöndum við nú með skilvirkari og öflugri stjórnsýslu.