ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.

05 desember 2012

/

Ferðamálaþing 23. nóvember 2012

Mikilvægi ferðaþjónustunnar aukist á undaförnum árum –

  • úr um 4,6% VÞF í 5,9 milli áranna 2008 og 2009.
  • Störfum fjölgað, úr 8500 árið 2009 í 9200 2011

Þetta helst auðvitað í hendur við mikla fjölgun ferðamanna og vitna þær tölur um mikinn árangur innan ferðaþjónustunnar. Fjöldi erlendra ferðamanna í fyrsta sinn yfir 600 þúsund á árinu 2012.

Ákveðið áhyggjuefni að árstíðarsveifla sú sem einkennir íslenska ferðaþjónustu virðist ekki hafa minnkað og að þau störf sem hér um ræðir eru ekki síst hluta- og árstíðabundin störf.

Mikilvægi ferðaþjónustunnar við að halda landinu í byggð.
Aukin fjölbreytni í þjónustu sem og menningu fyrir tilstuðlan ferðaþjónustunnar, ekki bara á landsbyggðinni heldur ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Hér er hægt að nefna sem dæmi um verslun í Mývatnssveit, kaffihús í Norðurfirði og á Rauðasandi, aðstöðu til kvikmyndasýninga á Hvammstanga. Airwaves í Reykjavík o.s.frv.

Samhliða hinni miklu fjölgun ferðamanna sem við höfum upplifað undanfarin tvö ár hefur sá skilningur verið að vaxa og uppbygging innviða, nýsköpun og vöruþróun verði að haldast í hendur við aukna markaðssetningu til þess að tryggja að vöxtur ferðaþjónustunnar verði sjálfbær til framtíðar.

Ísland allt árið og markaðsverkefni
Ríkisstjórnin hefur ásamt ferðaþjónustunni ráðist í markaðsverkefni, sem ætlað er að opna augu væntanlegra ferðamanna á þeim möguleikum sem Ísland býður upp á utan háannar.

Ísland allt árið hefur nú verið starfrækt í um eins árs skeið, í umsjón Íslandsstofu og hefur á þeim tíma vakið athygli á hinu fjölþætta aðdráttarafli íslenskrar ferðaþjónustu. Ferðamönnum hefur ekki síst fjölgað utan háannar á undanförnu ári og vonandi að áframhaldandi árangur þessa verkefnis skili sér í auknum mæli í vaxandi fjölda ferðamanna utan sumartímans.

Á sama tíma hefur verið hrint af stað ýmsum verkefnum sem ætlað er að nálgast viðfangsefnið hinum megin frá, þ.e. út frá uppbyggingu og nýsköpun í þessari atvinnugrein.

  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, vistaður hjá Ferðamálastofu (og fjárfestingaráætlunin, sem nú mun efla hann til muna á næstu árum)
  • Þróunarsjóður Landsbanka og ANR

Fjölmörg verkefni Ferðamálastofu, þ.á.m. kortlagning á auðlindum ferðaþjónustunnar um land allt, sem gagnast mun við stefnumótun, vöruþróun og framtíðarsýn ferðaþjónustunnar í öllum landshlutum.
Og ekki síður VAKINN, metnaðarfullt gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar sem tekið hefur til starfa fyrir fyrirtæki utan gistingar, en nú þegar hafa 62 fyrirtæki skráð sig. Gistihluti verður svo tekinn í gagnið á næsta ári. Mikilvægur liður í að tryggja faglega uppbyggingu fyrirtækja innan ferðaþjónsutunnar, svo og samættingu umhverfissjónarmiða í alla starfsemi þeirra.

Styrkveitingar til skipulags og hönnunar áfangastaða fyrir ferðamenn, þar sem Ferðamálastofa stefnir að því að styðja við þá heildarsýn sem nauðsynleg er að leggja til grundvallar uppbyggingu á áfangastöðum fyrir ferðamenn. Þar þurfa að spila saman framtíðarsýn og stefnumótun, hönnun og skipulag, framkvæmdir, skilaboð og kynning.

Þetta er einmitt yfirskrift Ferðamálaþings í dag: við erum hvött til að hugsa okkur stað – og til þess þurfum við sem komum að stuðningi við ferðaþjónustuna að hugsa út frá öllum þeim sjónarmiðum sem hér eru að framan talin.

Það verður án efa athyglisvert að kynnast nánar sjónarmiðum sérfræðings sem þekkir vel til þess hvernig hægt er að umbylta landssvæði með þarfir ferðaþjónustunnar í huga,  heyra af sveitarfélagi sem hefur sett ferðaþjónustuna á oddinn í framtíðarsýn sinni og stefnumótun, heyra frá fulltrúum hönnunar, framkvæmdaraðila og þeirra sem varðveita segla í héraði – í þessu tilfelli norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Hér á eftir verða umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent – en þau hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 ferðaþjónustufyrirtæki eða einstaklingi í ferðaþjónustu sem þykir hafa skarað framúr á sviði umhverfismála. Verðlaunin eru bæði hvatning og áminning til þeirra sem stunda ferðaþjónustu að huga vel að umhverfinu í allri starfsemi sinni.

Sökum anna get ég því miður ekki verið viðstaddur þegar verðlaunin verða afhent. Nafni verðlaunahafans hefur hins vegar verið hvíslað í eyra mér og sýnist mér að einstaklega vel hafi tekist til að þessu sinni. Ég óska verðlaunahafanum - fyrirfram - hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna. Hann á mikið hrós skilið.

Og Ferðamálastofa og allir sem koma að Ferðamálaþingi 2012 eiga líka skilið hrós fyrir þann metnað og kraft að vilja ævinlega gera betur í dag en í gær - og enn betur á morgun!

Hér með set ég Ferðamálaþing 2012 – og ég er með það alveg á hreinu hvaða stað ég hef í mínu hugskoti.

 

 

Efnisorð