ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
05 desember 2012
/
"Make it happen" 25. september 2012
Mikið er talað um stefnumörkun ríkisstjórnarinnar - Ísland 20 / 20. Mig langar að hefja mál mitt á því að líta til baka á Ísland 12 / 20. Þá voru skapandi greinar í öndvegi – skáldskapur og bókagerð sem hafa borið hróður þjóðarinnar um víða veröld. Tel að þarna hafi ekki hvað síst verið lagður grunnurinn að árangri ferðaþjónustunnar í dag.
Eitt af forgangsverkum okkar í ríkisstjórninni að móta atvinnustefnu fyrir Ísland – og þar skal byggt á sérstöðu okkar og styrkleikum. Í þessari vinnu leggjum við ríka áherslu á samstarf við sjálft atvinnulífið. Ykkar er að kalla – okkar að hlusta og móta þann vermireit sem kröftugt og skapandi atvinnulíf fær best þrifist í.
Markmið með stofnun nýs ráðuneytis atvinnuvega- og nýsköpunar er að efla og einfalda stoðkerfi atvinnulífsins. Og ekki síður að brjóta niður gamla múra milli atvinnugreina.
Ímyndið ykkur tækifærin sem liggja í því þegar atvinnugreinarnar geta sótt styrk hver í aðra – og þá ekki síst fyrir tilstilli skapandi greina.
Framtíð íslensks sjávarútvegs er björt – en það má hins vegar öllum vera ljóst að vöxtur hans liggur ekki í auknum veiðum. Sóknarfærin liggja í því hvernig við getum margfaldað verðmæti hvers fisks – með nýsköpun á sviði lækningavara, tískuvara, hollustuvara, snyrtivara ... svona gæti ég haldið lengi áfram. Og þarna skiptir hugmyndaauðgi og kraftur hinna skapandi greina sköpum.
Og ævintýralegur vöxtur ferðaþjónustunnar – sem hefur tvöfaldað sig á hverjum áratug – er ekki síst að þakka samstarfi þvert á atvinnugreinar og kröftugrar ímyndauppbyggingar. Bláa lónið + 66 gráður norður + nýsköpun í mat eru bara örfá lykildæmi um mátt og verðmæti skapandi hugsunar.
Og þá erum við ekki farin að tala um hinar eiginlegu skapandi greinar og mikilvægi þeirra
velta af starfsemi í skapandi greinum nam alls 191 milljarði króna árið 2009 – þ.a. 24 milljarðar í útflutningstekjur.
Ársverk við skapandi greinar voru um 9.400 talsins árið 2009 og voru flest árið 2008, eða rúmlega 10.000.
Starfshópur um bætt umhverfi skapandi greina hefur skoðað hvernig hægt sé að bæta starfsumhverfi skapandi greina og nýta þau tækifæri sem til staðar eru, efla rannsóknir, menntun og stefnumótun og styðja við útflutningsstarfsemi, niðurstaða starfshópsins liggur fyrir á næstu vikum.
Til viðbótar hafa stjórnvöld í samvinnu við viðskiptafræðideild HÍ unnið rannsókn á því hvernig stoðkerfi atvinnulífsins getur betur mætt þörfum skapandi greina og stutt þær til enn frekari verðmætasköpunar og útflutnings.
Í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2013-2015 er t.d. lagt til að 750 milljónum verði varið í sérstakan verkefnissjóð skapandi greina, 1,4 milljarður til eflingar kvikmyndasjóðs, 1,5 milljarður til uppbyggingar ferðamannastaða, 600 milljónir til netríkisins Íslands. Að auki verði framlag til Tækniþróunarsjóðs hækkað um 2,2 milljarða og 1,5 milljarð til Markáætlana.
Þegar allt kemur til alls þá snýst starf okkar allra – hvort sem við erum í stjórnmálum, stjórnsýslunni eða í sjálfu atvinnulífinu um það hvernig við best byggjum sterkt, öflugt, skapandi og skemmtilegt samfélag hér á Íslandi. Samfélag þar sem er gott og eftirsóknarvert að búa – og þar sem að fólki bjóðast fjölbreytt og spennandi atvinnutækifæri. Þessi þjóðfélagsgerð verður ekki byggð upp án skapandi greina.