ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
07 janúar 2013
/
Grein í DV 7. janúar 2013 - "Bjartsýni og vonir glæðast"
Bjartsýni og vonir glæðast
Á síðustu dögum hafa birst tvær athyglisverðar fjölþjóðlegar kannanir þar sem fólk er spurt um ánægju með líf sitt eða beðið að leggja mat á horfur og aðstæður í sínu heimalandi. Kannanirnar tvær eru ólíkar. Annars vegar er það Eurobarometer könnunin frá því í nóvember sem Capacent framkvæmir á Íslandi. Eurobarometer könnunin nær til um 30 Evrópulanda. Hins vegar er árleg könnun Gallup á alþjóðavísu sem Capacent Gallup framkvæmir á Íslandi. Þar er spurt um ánægju og efnahagsvæntingar. Niðurstöður úr báðum þessum könnunum hljóta að teljast mjög jákvæðar fyrir Ísland. Þær rýma einnig ágætlega við þróun helstu hagvísa hér á landi undanfarin misseri samanborið við önnur þróuð lönd og alveg sérstaklega önnur Evrópulönd. Flestir erlendir greinendur og umfjöllunaraðilar um efnahagsmál sem hafa úttalað sig um Ísland hafa sömuleiðis almennt verið á jákvæðum nótum þegar þeir fjalla um þróun mála hér að undanförnu.
Eurobarometer
Í hinni viðamiklu Eurobarometer könnun eru viðhorf könnuð til allmargra þátta. Til að mynda er spurt hvort aðstæður í viðkomandi landi séu nú að þróast í rétta eða ranga átt. Þar kemur Ísland sláandi vel út í samanburði við önnur lönd. Mun stærri hluti þjóðarinnar telur þróunina í rétta átt en hjá næstu þjóðum sem reynast vera Danmörk og Svíþjóð. Ísland hefur bætt stöðu sína í þessu efni frá síðustu mælingum. Tæplega 60% svarenda á Íslandi telja Ísland á réttri leið, næst bjartsýnastir eru Danir en 46% þeirra eru sömu skoðunar, þ.e. telja aðstæður vera að þróast í rétta átt en hinir eru næstum jafn margir í tilviki Dana sem telja svo ekki vera. Meðaltal hinna bjartsýnu innan ESB ríkjanna er einungis um 24%. Um 28% svarenda á Írlandi telja að land þeirra sé á réttri leið en mun stærri hluti eða um 46% vill meina hið gagnstæða. Staðan er því gerólík á Íslandi eins og sjá má í töflunni að neðan.

Í Eurobarometer könnuninni kemur auk þess fram að um 60% Íslendinga telja að botni kreppunnar á vinnumarkaði sé þegar náð, en einungis um þriðjungur telur það versta eftir. Þetta er sömuleiðis mun jákvæðari niðurstaða en í öllum öðrum Evrópulöndum sem könnunin tekur til.
Gallup
Íslendingar eru almennt ánægðir með lífið samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun Gallups sem nær til 50 landa. Ísland er í tíunda sæti yfir ánægðustu þjóðir heims þegar spurt er hvort fólk sé ánægt eða óánægt með líf sitt. Á Íslandi eru um 68% ánægð með líf sitt og 7% óánægð. Um 24% segjast hvorki ánægð né óánægð og 1% tekur ekki afstöðu. Íbúar Rómönsku-Ameríku eru ánægðaastir með lífið en mest hefur dregið úr ánægju í Afríku og sumum löndum Vestur-Evrópu miðað við niðurstöður sambærilegrar könnunar í fyrra.
Niðurstaða
Samandregið benda niðurstöður þessara kanna sterklega til þess að Íslendingar séu á nýjan leik í fremstu röð meðal þjóða heims hvað snertir ánægju með líf sitt og landsmenn bjartsýnir á það sem framundan er. Íslenska þjóðin sjálf virðist sem sagt telja sig vera á réttri leið. Það er athyglisvert og ánægjulegt í senn því ekki vantar nú að ýmsir reyni í sínum málflutningi að telja landsmönnum trú um hið gagnstæða.
Steingrímur J. Sigfússon