ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
28 maí 2013
/
Ávarp 28. maí 2013 um stefnumörkun í ferðaþjónustunni
ATH: Talað orð gildir
Kæru fundarmenn,
Ég sé á dagskránni að morguninn hefur verið áhugaverður og að þið hafið væntanlega lært eitt og annað sem getur nýst fyrirtækjum ykkar til framtíðar.
Þá vil ég gjarnan þakka Hákoni Gunnarssyni fyrir að bjóða mér að ávarpa ykkur hér í dag - en það er eitt af mínum fyrstu embættisverkum sem ráðherra ferðamála. Mér finnst ég hafa dottið í lukkupottinn að fá tækifæri til að starfa að uppbyggingu ferðaþjónustunnar og er fullviss um að samstarfið við ykkur og aðra í greininni verði ánægjulegt og árangursríkt.
Atvinnugreinin stendur á ákveðnum krossgötum og áleitnar spurningar munu koma upp í auknum mæli á næstunni. Þeim þurfum við að geta svarað. Ég er á yfirreið þessa dagana við að heimsækja undirstofnanir ráðuneytisins og tók einmitt hús á Ferðamálastofu í gær og fékk fína kynningu á þeim fjölmörgu verkefnum sem þar er verið að vinna að.
Svo ég byrji á byrjuninni þá vona ég að þið séuð ánægð að sjá hversu hreint er gengið til verks stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar með þá ákvörðun að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu. Eins og þið vitið voru þær hugmyndir okkur þyrnir í augum af ýmsum ástæðum … og þar sem enginn hefur hreyft sérstökum mótmælum lít ég svo á að þessi ákvörðun hafi mælst vel fyrir hjá greininni. Ég vil vinna að breytingum í samstarfi við greinina og séu breytingar fyrirhugaðar þá verði gefinn nægur fyrirvari til aðlögunar.
Í stefnuyfirlýsingunni er einnig kveðið á um nauðsyn langímastefnumótunar fyrir ferðaþjónustu hér á landi. Vissulega samþykkti Alþingi ferðamálaáætlun fyrir tímabilið 2011-2020 en þróunin er á þeim ógnarhraða að samhliða þarf að reyna að átta sig enn betur á því hvert greinin stefnir og hvernig megi gera hana að heilsársatvinnugrein. Þar reynir auðvitað á hugmyndaauðgi, kraft og samtakamátt ykkar sem starfið í fyrirtækjunum. Stofnanir ríkisins eiga að styðja við það.
Hér er samankominn vettvangur sem starfar að kortlagningu íslenskrar ferðaþjónustu og eru tvær af stofnunum ráðuneytisins þátttakendur í starfinu. – En einnig er nýútkomin ítarleg skýrsla erlends ráðgjafafyrirtækis, PKF, sem Íslandsstofa lét vinna og tekur á þeim ógnunum og tækifærum sem við blasa auk þess að fjalla um ramma greinarinnar af hálfu stjórnvalda.
Enn önnur stefnumótun stendur yfir. Isavia, Bláa lónið, Höldur og Icelandair Group standa að henni - og á sér nú stað víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Allt þetta mun vonandi nýtast til að móta greininni nauðsynlega umgjörð sem er nauðsynleg.
Ég mun horfa til þess að einfalda hlutina frekar en flækja og vonast til að njóta stuðnings ykkar við þær hugmyndir. Ég legg einnig ríka áherslu á þjónustuhlutverk ríkisstofnana og munum við greina betur hlutverk þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra og fara með ferðamál.
Ráðuneytið hefur nú tekið við auknum verkefnum á sviði ferðamála með færslu löggjafar um mál sem brenna á atvinnugreininni. Þetta eru lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og lög um bílaleigur.
Ég vil gjarnan sjá leyfismál í föstum farvegi og að ónauðsynlegri skriffinnsku verði útrýmt í samráði við hagsmunaaðila í greininni, - þess í stað verði horft eingöngu til þeirra leyfa sem eru greininni algerlega nauðsynleg varðandi öryggis- og gæðamál.
Eins og kunnugt er hefur gjaldtaka til uppbyggingar ferðamannastaða verið mikið rædd. Einn af vinnuhópum samráðsvettvangs um aukna hagsæld hefur nýverið skilað athyglisverðum tillögum sem samráðsvettvangurinn hefur ekki tekið afstöðu til. Þetta er stórt mál og verulega stefnumarkandi og vil ég að það sé kannað gaumgæfilega frá öllum hliðum.
Áður en nokkuð verður ákveðið og framkvæmt mun ég leita eftir nánu samstarfi við fjármálaráðherra og umhverfisráðherra um raunhæfar aðferðir við gjaldtökuna, hvort sem útfærslan verður í formi aðgangseyris eða náttúrupassa. Og ekki síður hvernig hægt sé að tryggja að fjármunirnir renni örugglega til verkefna sem nýtast ferðaþjónustunni og hennar helstu auðlind, sem er náttúra landsins. Ferðamálastofa vinnur nú að því að setja fram útfærslur þeirra leiða sem eru í umræðunni og bind ég miklar vonir við að tillögur stofnunarinnar verði framkvæmanlegar, komi til gjaldtöku.
Góðir fundarmenn,
Engin atvinnugrein þroskast eðlilega án rannsókna og nýsköpunar. Ríkisstjórnin vill örva samstarf og samlegð fyrirtækja til þess að vinna að þróunarmálum einstakra greina, meðal annars með því að móta klasastefnu, bæta aðgengi sprotafyrirtækja og einfalda stuðningsumhverfið. Allt þetta er í fullum gangi en ég legg áherslu á að við dreifum kröftunum ekki of víða - heldur reynum að finna einhvern einn sameiginlegan vettvang sem sameinar alla þá sem starfa í þessari fjölbreyttu atvinnugrein.
Skírskotun til ferðaþjónustu er víða að finna í áherslum nýrrar ríkisstjórnar. Tekið er fram að Ísland hafi sérstöðu í umhverfismálum í krafti ósnortinnar náttúru og sjálfbærri nýtingu endurnýjanlegra auðlinda. Sú ímynd sé auðlind í sjálfri sér. Grein eins og ferðaþjónusta sem þrífst á ímynd umfram allt annað þarf að vera virkur þátttakandi í umhverfisvernd og ímyndaruppbyggingu á því sviði. Allt sem gert er í ferðaþjónustu þarf að vera í anda þeirrar ímyndar sem greinin er sammála um að sé lífsandi hennar.
Góðir fundarmenn. Þið heyrið að mér er mikið niðri fyrir og að ég hugsa ferðaþjónustuna í víðu samhengi. Fyrst og síðast er þetta grein sem þarf að fá tækifæri til að þróast í sátt við náttúru og íbúa landsins. Til þess að svo megi verða er mikilvægt að við skerpum fókusinn og sameinumst um það að gera þá sýn okkar allra að veruleika.
Ég óska ykkur góðs gengis í ykkar störfum og hlakka til samstarfsins við ykkur.