ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.

05 júní 2013

/

Ræða við útskrift Brautargengiskvenna 31. maí 2013

ATH: Talað orð gildir

Brautargengisútskrift


Glæsilegi útskriftarhópur Brautargengiskvenna, Bjarnheiður Brautargengisstjóri og aðrir góðir gestir.   


Á sjálfan útskriftardaginn á það auðvitað við að tala um mikilvægi menntunar og þá ekki síður gildi ástundunar og elju. Saga Brautargengiskvenna á liðnum 15 árum ber þessu glæsilegan vitnisburð – og ég veit fyrir víst að þið verðið engir eftirbátar Brautargengis fyrirrennara ykkar.

Mér finnst samt að ég verði að gera ofurlitla játningu nú í upphafi máls míns – ég er sem sagt að skrópa í skólanum! Sem nýr ráðherra á ég að vera í tíma í ráðherraskóla stjórnarráðsins þar sem að ég er leidd í allan sannleikann varðandi það að vera ráðherra. Ég gat bara ekki staðist þetta tilefni – að vera hér með ykkur þegar þúsundasta konan er útskrifuð úr Brautargengi. Það verður bara að hafa sig þó að ég fái F í kladdann.

Það er kannski ekki þráðbein lína héðan úr höfuðstöðvum Nýsköpunarmiðstöðvar alla leið til Persíu – en mér varð hugsað til hennar Scherazade sem í þúsund og eina nótt bjargaði lífi sínu með ráðsnilld og sagnagáfu - og úr varð eitt þekktasta ævintýri heimsbókmenntanna. Saga Brautargengisverkefnisins er auðvitað ekkert annað en ævintýri – og það er ekki nóg með að þúsundasta konan útskrifist hér í dag – heldur einnig sú sem er númer 1001 – og þegar dagurinn er allur verður heildartala Brautargengiskvenna komin upp í 1021.

Ef það er eitthvað sem við Íslendingar þurfum á að halda í dag þá er það nýsköpunarkraftur, jákvæðni, dugnaður og þor - og af slíku er nóg af hér í ykkar hóp í dag.

Og þó að þyngd geti verið viðkvæmt umræðuefni - þá segi ég við ykkur með stolti – „það mun svo sannarlega muna um ykkar lóð á vogarskál atvinnuuppbyggingar og hagsældar á íslandi.“

Þegar ég renndi yfir viðskiptahugmyndirnar ykkar þá kemur fyrst í hugann hvað þær eru skemmtilega fjölbreyttar. Það er áberandi að margar tengjast þær ferðaþjónustu sem og hönnun og listum. Hér eru einnig spennandi verkefni á sviði mennta-, heilbrigðis- og félagsmála þar sem þróaðar eru nýjar leiðir til að mæta þörfum viðskiptavina með nýjum og betri hætti.

Ég þekki þó nokkrar Brautargengiskonur og allar segja þær mér sömu söguna – Brautargengisnámskeiðið var frábær hvatning og nauðsynlegur stökkpallur til að þær létu drauminn verða að veruleika. Það er nefnilega þannig í lífinu að hver er sinnar gæfu smiður – og það sýnir svo mikið hugrekki og metnað að taka skrefið til fulls.
Það er ekki nóg með að nú í dag útskrifist 22 konur hér í Reykjavík. Á Egilsstöðum fer einnig fram útskrift og þar útskrifast 11 konur. Við sendum okkar allra bestu kveðjur austur.

En við erum aðeins á undan þeim á Egilsstöðum – og það gerir það að verkum að þúsundasta konan sem útskrifast frá upphafi er hér í þessum sal. Og eins og alltaf þegar veita á einhverjum sérstökum viðurkenningu – þá dregur kynnirinn það aðeins á langinn að tilkynna hver hreppir hnossið.

Það eru sem sagt liðin 15 ár síðan fyrsta Brautargengisútskriftin var haldin, meðalfjöldi þátttakenda er 66 konur á ári og miðað við úttekt Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands er rúmlega helmingur þátttakenda frá upphafi í eigin atvinnurekstri. Og störfin sem brautargengiskonur hafa skapað skipta mörgum þúsundum.

Að þessu sögðu þá upplýsi ég að þúsundasta Brautargengiskonan er Margrét Helga Skúladóttir. Viðskiptahugmynd Margrétar gengur út á að setja upp stafræna textílprentsmiðju ásamt samstarfskonu sinni Guðrúnu Eysteinsdóttur. Það er mikil þörf fyrir þessa þjónustu, því með henni færist þjónusta við fatahönnuði landsins nær þeim, þeir geta þróað fatnað með prenti, án þess að þurfa að leita á erlenda grundu til þess, þeir geta framleitt smærri upplög og nýtt tækni, sem hefur verið þeim bæði dýr og fjarlæg fram að þessu.

Ég vil biðja Margréti að koma hingað og taka á móti viðurkenningu sem þúsundasta Brautargengiskonan.


Besta viðskiptaáætlunin
Samstarfskonurnar Guðrún Eysteinsdóttir og Margrét Helga Skúladóttir fá viðurkenningu fyrir bestu viðskiptaáætlunina.  Þær hyggjast stofna Textílprentun  Íslands og hafa unnið mjög góða og vandaða undirbúningsvinnu. Þær gerðu ítarlega markaðsrannsókn, mótuðu stefnu eftir henni og unnu vandaða fjárhagsáætlun til 3 ára, byggða á markaðsrannsókninni.


Besta fjárfestakynningin
Sigrún Þuríður Runólfsdóttir fær viðurkenningu fyrir bestu fjárfestakynninguna, en hún vann að stofnun fyrirtækisins Vegg slf, sem hún á ásamt systrum sínum.  Vegg framleiðir vegglímmiða af ýmsum toga og ætlunin að fara bæði á innlendan og erlendan markað.  Sigrún kynnti fyrirtækið af ástríðu og mikilli fagmennsku með vönduðu sjónrænu efni.

Efnisorð