ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
23 desember 2013
/
Ávarp við útskrift úr Brautargengi, 13. desember 2013
ATH: Talað orð gildir
Ágætu samkomugestir.
Síðast þegar ég stóð í þessum sporum urðu þau tímamót í 15 ára sögu Brautargengis að eitt þúsundasta konan útskrifaðist. Eftir daginn í dag verða þær orðnar 1.048. Störfin sem hafa orðið til í kjölfar Brautargengis skipta þúsundum í íslensku samfélagi. Sannarlega frábær árangur.
Í haust útskrifast 21 kona úr Brautargengi í Reykjavík og jafnhliða í dag munu 6 konur útskrifast á Akureyri. Af þeim sem útskrifast hér í Reykjavík í dag eru tvær sem hafa lagt það á sig að koma af Snæfellsnesinu vikulega til að stunda námskeiðið hér í Reykjavík. Það er sannarlega elja. Aðrar konur hér eru af höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri koma þær allar af stór Eyjafjarðarsvæðinu.
Viðskiptahugmyndir á báðum stöðum eru af ýmsum toga, hefðbundin og óhefðbundin ferðaþjónusta, hönnun og handverk, en innan um eru óvenjulegri hugmyndir á borð við skóþjónustu við fólk með misstóra fætur.
Frá því fyrstu konurnar útskrifuðust árið 1998 og á þeim tíma sem liðinn er hefur hlutfall kvenna sem meirihlutaeigenda fyrirtækja risið hægt og rólega upp fyrir tuttugu prósentin. Ennþá er þó langt frá því að jöfnuður ríki með kynjunum að þessu leyti. Þess vegna er Brautargengi svo mikilvægt og full þörf á að styðja sérstaklega við konur með ráðum og dáð við að feta sín fyrstu skref í fyrirtækjarekstri.
Eins og ég minntist á áðan skipta störfin sem Brautargengiskonur hafa skapað þúsundum. Þetta eru fjölbreytt störf sem laga sig nákvæmlega að þörfum starfsfólksins, af því það eru jú konurnar sjálfar sem skapa þau utan um sína styrkleika og þekkingarverðmæti. Þarna er frumkvöðlakrafturinn beislaður og virkjaður til að búa til verðmæti og það skiptir okkur svo miklu máli í samfélaginu í dag að nýta frumkvöðlakraftinn til fulls.
Það er gaman að sjá ykkur hér í dag og finna orkuna sem þið búið yfir. Það er nákvæmlega þessi orka sem ég vil sjá almennt í íslensku atvinnulífi í dag. Ef okkur tekst virkja alla þá orku sem er í samfélaginu hjá fólki sem vill byggja upp atvinnu og nýta tækifærin þá mun okkur vel farnast – en til þess þurfum við að nýta ýmis þau tæki sem við höfum og Brautargengi er eitt af þeim.
Þeim sem ég hef talað við ber saman um að Brautargengisnámskeiðin séu frábær hvatning og nauðsynlegur vettvangur til að láta drauminn verða að veruleika. Í dag er ykkar dagur og þið uppskerið eins og þið sáðuð til. Þið sýnduð hugrekki og metnað, þið tókuð skrefið til fulls og í dag rætist draumurinn.
Að lokum vil ég óska ykkur öllum innilega til hamingju um leið og ég hvet ykkur til áframhaldandi sóknar í íslensku atvinnulífi, því atvinnulífið þarf svo sannarlega á konum eins og ykkur að halda.