ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
19 febrúar 2014
/
Ávarp við spennusetningu nýs launaflsvirkis Landsnets á Grundartanga. 18. febrúar 2014
ATH: Talað orð gildir
Kæru gestir,
Í þriðja sinn á innan við 6 mánuðum veitist mér sá heiður að spennusetja og vígja nýtt mannvirki Landsnets sem myndar hluta af okkar mikilvæga flutningskerfi raforku.
Ég verð að segja að það er ánægjulegt að fá að fylgjast með því hvernig Landsnet vinnur hörðum höndum að því að styrkja flutningskerfið, en ég hef að undanförnu ítrekað bent á mikilvægi þess að flutningskerfið verði styrkt svo það geti betur tekist á við hlutverk sitt sem er að tryggja hagkvæma og áreiðanlega afhendingu raforku um landið allt.
Nýjar háspennulínur eru ekki alltaf lausnin og er því ánægjulegt að sjá hvernig Landsnet, með nýsköpun að leiðarljósi, hefur tekist að auka flutningsgetu inn á iðnaðarsvæðið hér á Grundartanga um 75 MW án þess að reisa nýja háspennulínu. Hið nýja launaflsvirki sem tekið verður í notkun hér í dag mun einnig auka almenn gæði raforkunnar þar sem spennustýring flutningskerfisins verður mun betri en áður og jafnframt mun hið nýja virki hafa jákvæð áhrif á stöðugleika í flutningskerfinu.
Árið 2010 var ákveðið að ráðast í þetta verkefni þegar ljóst var að tengivirki Landsnets á Brennimel í Hvalfirði, sem er stærsti afhendingarstaður orku í flutningskerfi Landsnets, annaði ekki frekari álagsaukningu. Þangað liggja þrjár 220 kílóvolta flutningslínur frá virkjanasvæðinu á Suðvesturlandi og þar er tengipunktur við iðnaðarsvæðið á Grundartanga.
Hér á Grundartangasvæðinu hefur byggst upp öflug iðnaðarstarfsemi og eru allar aðstæður hér eins og best verður á kosið fyrir framsækna iðnaðarstarfsemi með tilheyrandi verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið, sem og jákvæðum samfélagslegum áhrifum. Í dag eru 10 fyrirtæki starfandi hér á iðnaðarsvæðinu að Grundartanga og í þessum fyrirtækjum starfa um 870 manns.
Á næstu árum er fyrirhuguð frekari uppbygging iðnaðar á Grundartangasvæðinu og eru sem stendur ýmsar hugmyndir til skoðunar um áhugaverð nýfjárfestingarverkefni á svæðinu. Eitt af grunnskilyrðum við uppbyggingu iðnaðarsvæða er trygg flutningsgeta raforku inn á svæðið. Mikill áhugi er hjá bæði núverandi notendum og nýjum aðilum að fá afhenta meiri orku á Grundartanga og hefur flutningsfyrirtækið ekki fyrr en nú verið í stakk búið til að sinna þeim óskum.
Það er því fagnaðarefni að Landsnet hafi mætt þörfum svæðisins með þessu nýja mannvirki sem mun stórefla afhendingaröryggi á Grundartangasvæðinu og gera Landsneti kleift að nýta betur núverandi flutningslínur. Um er að ræða stærsta verkefni Landsnets á liðnu ári og nam heildarkostnaður um tveimur milljörðum króna. Sjálf er ég ekki í minnsta vafa um það að framkvæmdin er í fullu samræmi við það sem fram kemur í 1. gr. raforkulaga; þ.e. að hún muni „stuðla að þjóðhagslega hagkvæmu raforkukerfi og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu“.
Kæru gestir,
Allar þær þrjár framkvæmdir á vegum Landsnets sem ég hef að undanförnu fengið að spennusetja, í Vestmannaeyjum, að Búðarhálsi og hér í dag, eru þáttur í mikilvægri uppbyggingu á flutningskerfi raforku. Landsnet hefur fjárfest í nýjum flutningsvirkjum fyrir um 8 milljarða síðastliðin þrjú ár, og í ár ráðgerir fyrirtækið að fjárfesta fyrir um 5 milljarða.
Ég hef oftar en einu sinni gert málefni flutningskerfisins að umræðuefni mínu í vetur, bæði innan sem utan Alþingis, og mun halda því áfram á meðan úrbóta er enn þörf á flutningskerfinu. Á næstunni mun Alþingi ljúka umfjöllun sinni um skýrslu nefndar sem ég lagði fram í haust og fjallar um raflínur í jörð og uppbyggingu flutningskerfisins. Í framhaldi af því munum við vinna áfram að skýrri stefnumótun og framtíðarsýn hvað þessi mikilvægu málefni varðar. Jafnframt mun ég innan skamms leggja fram á Alþingi frumvarp til laga sem kveður skýrt á um hlutverk og stöðu kerfisáætlunar Landsnets til 10 ára, en hún gegnir lykilhlutverki við framtíðaruppbyggingu á flutningskerfinu. Það er því brýnt að við vinnum áfram af fullum krafti að þessum málum.
En kæru gestir, ég vil að lokum segja að það er full ástæða til að fagna þeim merka áfanga sem á sér stað hér í dag og vil ég óska Landsneti og öðrum þeim aðilum sem að framkvæmdum þessum hafa komið til hamingju með vel unnið verk. Eins og við sjáum þá hefur vel verið staðið að þessum framkvæmdum og inni í þessu mannvirki er nýjasti og besti hátæknibúnaður sem völ er á, en hann er hluti af þeim snjallnetslausnum sem Landsnet er að innleiða í rekstri og stjórn raforkukerfisins til að auka afhendingaröryggi.
Þessi athöfn hér í dag er okkur hvatning í að halda áfram jákvæðri og nauðsynlegri uppbyggingu á flutningskerfi raforku, og mikilvæg forsenda fyrir aukinni verðmætasköpun hér á helsta iðnaðarsvæði landsins. Ég ítreka því hamingjuóskir mínar til Landsnets og annarra þeirra aðila sem komið hafa að þessum framkvæmdum.
Til hamingju !
