ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.
27 febrúar 2014
/
Ræða á aðalfundi ICEPRO, 25. febrúar 2014
ATH: Talað orð gildir
Kæru ICEPRO aðalfundargestir - og tilvonandi sigurvegarar EDI verðlaunanna
Fyrir 24 árum þegar fyrsti aðalfundur ICEPRO var haldinn þá geri ég ráð fyrir því að sá ráðherra sem þar talaði hafi verið nánast eins og spámaður að tala um ótrúlega hluti sem myndu gerast í fjarlægri framtíð – á næsta árþúsundi.
Nú í dag erum við sannarlega í öðru árþúsundi – og nú þykir þetta allt svo sjálfsagt og eðlilegt að ef menn rekast á einhvers konar hindranir þá hrista menn hausinn og spyrja sig af hverju það sé ekki löngu búið að koma þessu eða hinu í rétt horf.
Og það sem að ég er kannski dálítið nervös fyrir – er að ef einhver eftir 24 ár sér að hér hafi ég verið að tala um möguleika í rafrænum viðskiptum þá hreinlega skilji menn ekki umræðuefnið. Hvernig geta viðskipti verið annað en rafræn! Hvað var þessi kona eiginlega að tala um!?!
En hér á árinu 2014 er það hlutverk ráðuneytisins að móta stefnu í tengslum við lög um rafræn viðskipti og undirskriftir til að stuðla enn frekar að rafrænum viðskiptum. Áherslan er á að forgangsraða aðgerðum til að tryggja samræmt og skilvirkt umhverfi rafrænna viðskipta á Íslandi þannig að þau gangi fullkomlega saman við þau kerfi sem notuð eru í öðrum löndum. Icepro þarf því að halda áfram að taka þátt í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði til þess að gæta hagsmuna Íslands og miðla þekkingu til íslensks atvinnulífs og opinberra aðila.
Rafræn viðskipti hafa gjörbylt hefðbundnum viðskiptaháttum. Viðteknar viðskiptavenjur eru að breytast, milliliðum fækkar, viðskiptakostnaður minnkar, nánara samband ríkir á milli fyrirtækja og neytenda og nýir markaðir fyrir vörur spretta upp. Hver sá sem hefur aðgang að Netinu getur boðið fram sínar vörur eða þjónustu og náð til neytenda hvar sem er í heiminum. Með sama hætti getur neytandi keypt vörur og þjónustu á hinu sameiginlega markaðstorgi heimsins óháð tíma og stað. Rafræn viðskipti skapa ný sóknarfæri fyrir fyrirtæki og neytendur og hagræðingin sem felst í rafrænum viðskiptum skiptir sköpum í því að auka samkeppnishæfni Íslands.
Í dag eru hið opinbera og flest fyrirtæki að ganga í gegnum ýmsar hagræðingar til þess að leggja grunn að eflingu íslensks efnahags- og viðskiptalífs. Stóra verkefnið er að treysta samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Ein meginstoð bættrar samkeppnishæfni er að viðhalda lágum kostnaði við helstu þætti viðskipta einstaklinga og fyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Rafræn viðskipti leika stórt hlutverk í að skapa grundvöll fyrir aukinni framleiðni og hagræði, þar sem sjálfvirkni og sjálfsafgreiðsla geta leyst af hólmi óhagkvæma og tímafreka handavinnu, bæði í viðskiptum og stjórnsýslu.
ICEPRO og ráðuneyti viðskiptamála, hafa verið í farsælu samstarfi í gegnum tíðina og frá 2009 hafa verkefni ICEPRO verið formuð í þjónustusamning við ráðuneytið. Meginverkefni samningsins er að byggja upp samstarf milli hins opinbera og atvinnulífsins til að ná fram þeirri auknu skilvirkni og hagkvæmni sem fæst með innleiðingu rafrænna viðskipta og vera upplýsingarveita og stuðningsaðili við aðila á markaðnum varðandi þessi mál.
Og okkur er alltaf að miða áfram – það skyldi t.d. enginn vanmeta mikilvægi þess að á síðasta ári lauk vinnu við útgáfu tækniforskrifta til stuðnings samræmdu verklagi á sviði rafrænna viðskipta. Og með því hefur verið lagður grunnur að markvissri innleiðingu rafrænna innkaupa á Íslandi. Stórt hrós til ICEPRO og fagstaðlaráðs í upplýsingatækni.
Og þá má nefna nýja reglugerð um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga og bókhaldskerfa eða reglugerðina með langa nafnið, eins og hún hefur verið kölluð. Sú reglugerð var mikilvægt skref í átt að aukningu rafrænna viðskipta og unnin í góðu samráði við alla aðila.
Fjármálaráðherra gaf út 10. október sl. að frá og með 1. janúar 2015 muni ríkið einungis taka við rafrænum reikningum. Áætlaður sparnaður vegna þessa er 500 milljónir á ári. Mikill kostnaður og slæm umhverfisleg áhrif fylgja pappírsreikningum og yfirlýsing fjármálaráðherra, sýnir vilja ríkisstjórnarinnar til að fylgja þessum málaflokki eftir og stuðla að skilvirkara og betri viðskiptum. Í kjölfar þessa má reikna með að ICEPRO fái frekari spurningar og mikilvægt er að ICEPRO hjálpi litlum fyrirtækjum og einstaklingum að fóta sig í þessu nýja umhverfi, sem og að tryggja að umhverfið sé þannig að auðvelt verði fyrir aðila að nýta sér tæknilausnir, án of mikils kostnaðar.
Ágætu fundarmenn.
Nú er komið að því skemmtilega verkefni að afhenda EDI bikarinn en þetta er í 18. skipti sem verðlaunin eru veitt. Verðalaunin eru hluti af hvatningarkerfi og útbreiðslu rafrænna viðskipta. Verðlaunin hafa m.a. runnið til upplýsingatæknisviðs banka og sparisjóða, sem standa mjög framarlega hvað varðar þjónustu á vefnum þar sem bæði svokallaðir heimabankar og fyrirtækjabankar eru í stöðugri þróun. Þá hefur Icelandair unnið verðlaunin fyrir að hafa þróað rafrænt umhverfi sitt þannig að viðskiptavinir þurfa ekki lengur að fara á ferðastofur til að panta sér flug. Viðskiptavinir geta á heimasíðum félagsins leitað sér upplýsinga um flugáætlun og áfangastaði, bókað og greitt fyrir ferðir hvort sem er með kreditkorti eða rafrænum gjafabréfum, fengið útgefinn rafrænan farseðil og valið sér flugsæti. Að lokum má nefna Ríkisskattstjóra sem náði fram byltingu í því hvernig skattframtölum er skilað. Það sem áður var leiðinleg kvöð er nú fimm mínútna verk hjá mörgum. Þetta sýndi að nýta má þróaða upplýsingatækni til að breyta þunglamalegum pappírsferlum í einföld rafræn viðskipti til hagsbóta fyrir stofnunina, fyrirtæki og allan almenning.
Þessi dæmi eru nú orðin sjálfsögð og menn eru fljótir að gleyma að hlutirnir voru ekki alltaf svona auðveldir. Samskonar einföldun má ná fram á fleiri sviðum sem mun auðvelda okkur lífið, spara tíma og peninga.
Sá sem hlýtur EDI-verðlaunin í ár er tækninefnd FUT (Fagstaðlaráð í upplýsingatækni). Tækninefndin er hópur einstaklinga úr atvinnulífinu og frá hinu opinbera sem hefur starfað ötullega undir styrkri stjórn Ragnars Torfa Jónssonar, fulltrúa Landsbankans, að útgáfu tækniforskrifta til stuðnings innleiðingar á rafænum viðskiptum sem byggja á XML stöðlum. Markmiðið með þessari vinnu hefur verið að að skapa forsendur til þess að öll fyrirtæki og stofnanir, stór og smá, geti tekið þátt i stöðluðum rafrænum viðskiptum á hagkvæman hátt og stuðlað þar með að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í íslensku efnahagslífi. Sérstaklega tókst vel til í ár og erfiði síðustu ára bar ávöxt með útgáfu staðla fyrir tækniforskriftir á sviði rafrænna viðskipta.
Innilega til hamingju þið öll í hópnum.