ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.

28 febrúar 2014

/

Ávarp á sjöundu ráðstefnu Hafrannsóknastofnunar um lífríki hafsins, 25. febrúar 2014 

ATH: Talað orð gildir

Góðir fundargestir,

Hafsbotninn og lífríki hans er áhugavert umfjöllunarefni fyrir okkur Íslendinga. Þegar við höfum í huga að 200 sjómílna íslenska efnahagslögsagan er 7,5 sinnum land okkar að flatarmáli, er ljóst að þar er um mikil auðæfi að ræða, sem brýnt er að afla þekkingar um og öðlast skilning á svo nýting og verndun verði sjálfbær og skynsamleg.

Mér skilst að langt sé í land að kortlagning botnyfirborðs þessa mikla hafsvæðis sé í höfn. Þó með fjölgeisladýptarmælum hafi tekist að afla nákvæmra gagna um yfirborð 10-15% þessa svæðis, eru auðlindir á botni og búsvæði hafsbotns lítt könnuð þegar á heildina er litið. Þau gögn sem þannig fást bæta þekkingu okkar á eðliseiginleikum sjávar og jarðfræði hafsbotnsins  og nýtast við rannsóknir á lífríki hafsins auk kortlagningu veiðislóða og viðkvæmra búsvæða, eins og kóralla.

Veiðarfæri, jafnt kyrrstæð sem dregin, hafa óhjákvæmilega áhrif á botninn og allt það líf sem fyrir þeim verða. Veiðislóð íslenska flotans, fótspor hans á botninum,  er vel þekkt og því er mikilvægt að gera sér sem besta grein fyrir áhrifum veiðarfæra á lífríki búsvæða - og hvernig samspil fiskveiðistjórnunar og nýtingar og verndun á auðlindum og búsvæði hafbotnsins spila best  saman. Þetta er  sér í lagi mikilvægt í tilviki þeirra búsvæða sem eru hægvaxta og  viðkvæm en styðja um leið við vöxt og viðgang nytjastofna.

Mikið verk er því framundan við það að afla þekkingar um hafsbotninn. Ekki síst á þetta við þegar haft er í huga, að fyrir liggur að réttindi Íslands til nýtingar auðlinda á hafsbotninum nær allt að 300 sjómílum en þau ráðast m.a. af jarðfræðilegum eiginleikum á landgrunninu og við landgrunnsbrún. Um þessi réttindi er nú vélað á vettvangi Sameinuðu þjóðanna  og munu þau færa okkur landsmönnum mikinn rétt og skyldur í framtíðinni þar sem rannsóknir og þekking leggja grundvöllinn að sjálfbærni.

Góðir fundarmenn,

Það er ánægjulegt að sjá hve fjölbreyttar rannsóknir eru stundaðar á hafsbotninum og lífríki og þessi dagsráðstefna gefur til kynna. Ég geri mér líka grein fyrir því að fram mun koma í dag hve mikið verk er óunnið. Vona ég að ráðstefna þessi verði okkur öllum hvatning til að efla þetta mikilvæga starf og að þið eigið ánægjuleg skoðanaskipti landi og þjóð til heilla.

Með þeim orðum set ég þessa 7. ráðstefnu Hafrannsóknastofnunar um lífríki hafsins og umhverfi þess.

 

Efnisorð