ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára.

03 september 2014

/

Ræða við opnun nýs tengivirkis Landsnets og Orkubús Vestfjarða á Ísafirði, 3. september 2014


ATH: Talað orð gildir



Kæru gestir.


Það er mér mikil ánægja að vera með ykkur hér í dag á Ísafirði þegar við tökum formlega í notkun nýtt tengivirki Landsnets og Orkubús Vestfjarða. Um er að ræða mikilvægan áfanga í orkumálum Vestfirðinga og því full ástæða til að fagna þessum degi.


Eins og ég hef ítrekað komið inn á síðan ég tók við ráðherraembætti er raforka ein af grunnstoðum samfélagsins og forsenda jákvæðrar byggðarþróunar. Við sjáum það hvað best þegar straumleysi á sér stað, en þá lamast nær öll starfsemi á viðkomandi svæði. Þeir sem búa á suðvesturhorninu, þar sem flutnings- og dreifikerfið er sterkt, rekur varla minni til þess hvenær straumleysi átti sér síðast stað. Þar ganga menn að rafmagninu vísu. Þessu er hins vegar öðru vísi farið víða á landsbyggðinni og þá sér í lagi hér á Vestfjörðum þar sem truflanir á raforkuafhendingu hafa verið allt of tíðar með tilheyrandi óhagræði fyrir heimili og atvinnulíf.


Alþingi hefur á undanförnum árum tekið ástand orkumála á Vestfjörðum til umræðu og hefur þingið samþykkt ályktanir sem hvetja til úrbóta í þessum mikilvæga málaflokki. Á vettvangi míns ráðuneytis hefur þessu verið fylgt eftir, meðal annars með stofnun samstarfshóps um afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum sem hefur greint stöðu orkumála í fjórðungnum og lagt fram tillögur til úrbóta. Í þessum samstarfshópi eru fulltrúar sveitarfélaga og fyrirtækja á svæðinu, Landsnets, Orkubús Vestfjarða og Orkustofnunar. Hefur vinna þessa samstarfshóps skilað ágætum árangri og hafa bæði Landsnet og Orkubú Vestfjarða unnið að styrkingu kerfa sinna í samræmi við vinnu og ábendingar starfshópsins og vil ég þakka fyrir það. Má þar nefna, til viðbótar við það mannvirki sem við vígjum hér í dag, bygging 10 MW varaaflstöðvar í Bolungarvík og endurbætur á Tálknafjarðarlínu 1 og Vesturlínu.


Þó svo að ráðist hafi verið í verulegar fjárfestingar hér í kerfinu á Vestfjörðum, og þrátt fyrir það að enn frekari fjárfestingar séu í undirbúningi, þá er það ljóst að orkuöryggi fjórðungsins verður ekki viðunandi til framtíðar nema ný orkuvinnsla komi til sögunnar innan svæðisins. Sé horft til þeirra rannsókna sem Landsnet hefur gert á rekstraröryggi flutningskerfisins á Vestfjörðum er ljóst að ný orkuvinnsla upp á 5-10 MW getur skipt sköpum varðandi rekstraröryggi á svæðinu til frambúðar og orðið til þess að koma í veg fyrir tíðar truflanir og straumleysi í kjölfar útleysinga og bilana á Vesturlínu. Er það von mín að til nýrrar orkuvinnslu komi sem fyrst og mun ég og ráðuneyti mitt styðja slík áform eins og frekast er unnt.


En kæru vinir, við erum saman komin hér í dag til að fagna þeim áfanga að Landsnet og Orkubú Vestfjarða eru að taka í notkun nýtt tengivirki um leið og eldra tengivirki sem er í byggð, og þar að auki á snjóflóðasvæði, er tekið úr rekstri. Þetta er mikill áfangi fyrir framtíðaruppbyggingu flutnings- og dreifikerfisins á Vestfjörðum og mér þykir það til mikillar fyrirmyndar hvernig staðið hefur verið hér að verki. Með þessu mannvirki, og öðrum þeim verkefnum sem eru í vinnslu, getum við vænst þess að raforkuöryggi Vestfjarða muni innan skamms verða mun betra eins og Vestfirðingar eiga svo sannarlega skilið.


Að lokum vil ég enn og aftur óska Vestfirðingum til hamingju með þetta nýja mannvirki og merkan áfanga í að auka rekstraröryggi raforkukerfisins hér á Vestfjörðum.


Takk fyrir.


Nýtt tengivirki tekið í notkun


Efnisorð