Félags- og húsnæðismálaráðherra

Ragnar Þór Ingólfsson

Félags- og húsnæðismálaráðherra

Ragnar Þór er félags- og húsnæðismálaráðherra og tók við embætti ráðherra þann 11. janúar 2026. Hann hefur setið á Alþingi frá árinu 2024.

Fæddur í Reykjavík 17. maí 1973. Foreldrar: Dagný Guðmundsdóttir, fædd 23. október 1951, dáin 23. nóvember 2018, sjúkraliði og Ingólfur Þ. Jónsson, fæddur 9. ágúst 1950, bifreiðastjóri og sölumaður. Maki: Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, fædd 22. febrúar 1980, aðstoðarmaður ráðherra. Foreldrar: Magnús Traustason og Þorbjörg Halldóra Gunnarsdóttir. Börn Ragnars Þórs með Guðbjörgu M. Kristjánsdóttur: Daði Már (2000), Daníel Dúi (2004) og Sóley Dís (2009). Stjúpbörn, börn Guðbjargar Ingunnar: Logi Þór (2008) og Emma Lísa (2012).

Sölustjóri o.fl. hjá Erninum 1992–2016. Formaður VR 2017–2024. Formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 2019–2024. Varaforseti ASÍ 2020–2024.

Í stjórn Borgarahreyfingarinnar 2009, í framboði fyrir Dögun 2016.

Í stjórn VR 2009–2024, formaður stjórnar 2017–2024. Í stjórn Landssambands verslunarmanna 2017–2024, formaður 2019–2024. Í miðstjórn og varaforseti ASÍ 2017–2024. Í stjórn Virk starfsendurhæfingar 2017–2023. Í stjórn Bjargs íbúðafélags síðan 2017, varaformaður 2020–2024, formaður síðan 2024.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2024 (Flokkur fólksins).

Formaður þingflokks Flokks fólksins 2025-2026.

Fjárlaganefnd 2025-2026 (formaður 2025-2026), framtíðarnefnd 2025, efnahags- og viðskiptanefnd 2025, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga 2025.

Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2025 (formaður 2025).

Félags- og húsnæðismálaráðherra