Um ráðuneytið

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið tók til starfa 15. mars 2025 í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Félags- og húsnæðismálaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Skipurit félags- og húsnæðismálaráðuneytisins

Verkefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins varða meðal annars félags- og fjölskyldumál, lífeyristryggingar almannatrygginga, vinnumál, málefni aldraðra og húsnæðis- og skipulagsmál. Verkefnin eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (15.3.2025).

Málefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru:

  • Gæða og eftirlitsstofnun velferðarmála
    Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
    Ríkissáttasemjari
    Tryggingastofnun
  • Umboðsmaður skuldara
  • Úrskurðarnefnd velferðarmála
  • Vinnueftirlitið
  • Vinnumálastofnun
  • Sjónstöðin