Um ráðuneytið

Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins.

Ráðherra, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.

Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í eftirfarandi; skrifstofa  samhæfingar og fjármála, skrifstofa kjara- og mannauðsmála, skrifstofa efnahagsmála, skrifstofa fjármálamarkaðar, skrifstofa opinberra fjármála, skrifstofa skattamála og skrifstofa stjórnunar og umbóta.

Þá starfar í ráðuneytinu sérstök eining, Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að aðstoða opinberar stofnanir við að bæta stafræna þjónustu við almenning með því að gera þjónustuna skýrari, einfaldari og hraðvirkari. Umbra er ráðuneytisstofnun sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið og sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna, að hluta eða í heild, með það að markmiði að stuðla að hagkvæmni í rekstri.

Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum og verkefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (14.3.2025)