Merki ráðuneytanna

Stjórnarráð Íslands notar skjaldarmerki Íslands sem merki sitt. Því skal sýnd virðing í hvívetna.

Merkið skal notað í öllu efni sem kemur frá Stjórnarráði Íslands.

Lóðrétt lína aðskilur merki og nafn. Séu merki og nafn aðskilin fylgir línan nafni.

Merkið er til í eftirfarandi útgáfum:

  • Í lit fyrir prent (CMYK, PDF skrár).
  • Í lit fyrir prent með silfri (ekki birt á vefnum).
  • Í lit fyrir skjái (RGB, PNG skrár).
  • Einlit línuteikning í hvítu (PDF skrár, án bakgrunns).

Nöfn ráðuneyta

Nafn Stjórnarráðs Íslands stendur ávallt efst í merkinu og nafn ráðuneytis undir. Stjórnarráð Íslands er ritað með stórum staf. Nöfn ráðuneyta eru rituð með stórum staf þar sem þau standa ein og sér. Annars staðar eru nöfn ráðuneyta rituð með litlum staf nema í upphafi setningar.
Skjaldarmerkið og heiti ráðuneytis á íslensku og ensku

Þegar nafn ráðuneyta er ritað á erlendu tungumáli skal fylgja rithætti viðkomandi lands.

Þegar rita þarf nafn ráðuneytis saman á íslensku og erlendu tungumáli skal fyrst rita það á íslensku og svo á því erlenda.

Loft í kringum merki

Þess skal gæta að vel lofti um skjaldarmerkið.

Reyna skal að hafa alltaf pláss á alla kanta sem nemur breidd skjaldarmerkisins og aldrei minna en helming þeirrar breiddar.

Hér fyrir neðan eru sýnd dæmi um hvernig á að nota merkið og hvernig á ekki að nota það.

Myndin sýnir hlutföll í merki Stjórnarráðsins
Sýnir hvernig á að nota merki ráðuneyta í tengslum við bakgrunn og liti

Skrár með merkjum ráðuneytanna

Hér að neðan má nálgast merki ráðuneytanna í mismunandi skráarsniðum. Þetta er einkum gert fyrir auglýsingastofur og prentsmiðjur sem vinna með merkið fyrir útgáfur ráðuneytisins.

Merki ráðuneyta með löng nöfn eru til bæði með heitið í einni eða tveim línum.

Skjaldarmerkið

Upplýsingar um skjaldarmerkið og notkun þess er að finna á öðrum síðum hér á vefnum, þar er meðal annars skjaldarmerkið eitt og sér fyrir prent- og skjámiðla.

Önnur tungumál og sendiskrifstofur

Merki Stjórnarráðsins á öðrum tungumálum en íslensku og ensku er að finna á annarri síðu. Þar er einnig merki utanríkisráðuneytisins á fleiri tungumálum og merki sendiskrifstofa.

Merki ráðuneytanna, íslenskur texti, gegnsær bakgrunnur - PNG skrár fyrir skjámiðla

Merki ráðuneytanna, enskur texti, gegnsær bakgrunnur - PNG skrár fyrir skjámiðla