Bréfsefni og nafnspjöld
Nafnspjald
- Framhlið nafnspjaldsins er á íslensku en bakhlið á ensku. Texti er prentaður í bláum lit.
- Skjaldarmerkið er prentað í lit.
- Stærð 85×55 mm
- Blár litur í CMYK 100—75—0—18
- Nafnspjaldið er prentað á vandaðan mattan pappír.
- Upplýsingarnar sem koma fram á spjaldinu eru örlítið mismunandi eftir því hvort þær eru á íslensku eða ensku.
Bréfsefni
Skjaldarmerkið er prentað í lit.
Blár litur í CMYK 100—75—0—18
Skjaldarmerkið er ávallt í efra vinstra horninu.
Nafn ráðuneytis er ávallt í neðra vinstra horninu.
Aðrar upplýsingar eru í tveim línum, í sömu stærð og texti í nafni ráðuneytis og í línu við nafn ráðuneytis.
Gæta skal þess að texti sé hvorki of nálægt skjaldarmerki né nafni ráðuneytis.
Umslög
Skjaldarmerkið er prentað í lit.
Blár litur í CMYK 100—75—0—18
Skjaldarmerkið og nafn ráðuneytis eru ávallt í efra vinstra horninu.
Aðrar upplýsingar eru í einni línu, í sömu stærð og texti í nafni ráðuneytis og í línu við nafn ráðuneytis.
Umslög eru til í stærðum C4, C5 og M65.
Hönnunarstaðall