Rit og skýrslur
Upplýsingar um Word sniðmát fyrir skýrslur má nálgast hjá upplýsingafulltrúum ráðuneyta.
Prentaðar skýrslur geta verið í öllum litapallettum ráðuneytisins, en fylgja ávallt einni pallettu. Litapallettum er ekki blandað saman.
Ekkert ráðuneyti getur eignað sér eina litapallettu.
Forsíður
Forsíður geta verið:
- Heillitaður grunnur.
- Heillitaður grunnur með munstri.
- Litagrunnur (með/án munsturs) ásamt mynd.
- Heil mynd.
Það sem breytist ekki:
- Hæð og breidd hvíta flatarins.
- Staðsetning og stærð skjaldarmerkis.
- Staðsetning og stærð nafns ráðuneytis.
- Staðsetning fyrirsagnar.
- Staðsetning og stærð dagsetningar.
Það sem er breytilegt:
- Fyrirsögn og feitletrun í fyrirsögn.
- Dagsetning.
- Nafn ráðuneytis.
- Bakgrunnslitur, mynd eða munstur.
Innsíður
Hafa skal í huga að reyna að setja ekki of miklar upplýsingar á hverja síðu.
Það sem breytist ekki er staðsetning upplýsinga í haus.
Það sem er breytilegt er efni skýrslu s.s. texti, myndefni, gröf, töflur og fleira.
Hönnunarstaðall